Getur gervigreind ráðið rétta fólkið?
Opus Futura býður félagsfólki á morgunverðarfund 4. júní n.k. kl. 8:30-10:00 þar sem fjallað verður um notkun gervigreindar í ráðningum og hvað þarf að hafa í huga.
Í umræðunni á fundinum taka þátt: Elín Gränz hjá JPT Marel, Hreinn Örnólfsson hjá Alvotech og Jónína Magnúsdóttir hjá Blue Car Rental
Þessi fundur í liður í því að Mannauður vill gjarnan gefa þeim fyrirtækjum / aðilum sem vinna með gervigreind í ráðningum kost á því að kynna sig fyrir félagsfólki og samhliða fræða félagsfólk.
Skálum fyrir vetrinum – fyrirtækjaheimsókn til INNNES
Fimmtudaginn 28. maí kl. 16:30 ætlum við að hittast, kveðja veturinn og vetrarstarfið, efla tengslin og mynda ný.
INNNES býður okkur í heimsókn í skemmtilegt húsnæði sitt í Korngörðum 3, Reykjavík. Boðið verður upp á glæsilegar veitingar, happdrætti og allir verða leystir út með veglegum gjafapokum frá INNNES.
Skiptir jafnvægi í forystu máli?
Á fundinum mun Erla Ósk fjalla um jafnvægi í forystu á vinnumarkaði og kynna hvernig hægt er að nota Jafnvægisvogina sem verkfæri til að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Einnig kynnir Unnur Ýr varaformaður Mannauðs niðurstöður nýrrar könnunar Mannauðs hvað “sæti við borðið” varðar. Boðið verður upp á umræður í lokin.
Brjótum múrana – byggjum árangur!
Edda fjallar um mikilvægi þverfaglegrar samvinnu innan fyrirtækja sem drifkraft framúrskarandi árangurs. Alltof oft standa ósýnilegir deildarmúrar í vegi fyrir árangursríkri samvinnu milli teyma, sem dregur úr hraða, gæðum og heildarárangri.
Í fyrirlestrinum fer Edda yfir hagnýtar leiðir til að brjóta niður þessa múra, efla samvinnu og skapa sameiginlega sýn sem skilar betri niðurstöðum, bæði fyrir starfsfólk og rekstur.
Alþjóðlegi Mannauðsdagurinn 2026 – Leading People Through Change.
Um alla Evrópu standa fyrirtæki og stofnanir frammi fyrir tímabili djúpstæðra breytinga. Hröð tækniframþróun, breyttar væntingar starfsfólks og síbreytilegt traust til stofnana eru að móta hvernig fólk upplifir vinnu og forystu. En umbreytingar verða ekki eingöngu til með stefnumótun. Þær verða til í gegnum fólk og forystu sem hjálpar því að skilja breytingarnar og vinna sig í gegnum þær.
Á Alþjóðlega Mannauðsdeginum gefst tilefni til að staldra við, varpa ljósi á mannlega þáttinn og fagna þeim áhrifum sem mannauðsstjórnun hefur á mótun hans. Án trausts geta umbreytingar skapað mótstöðu. Án tilgangs geta breytingar leitt til þreytu. Án ígrundunar geta jafnvel vel meintar umbreytingar veikt forystu.
Vinnustaðamenning sem drifkraftur árangurs
Á viðburðinum fjallar Torben Nielsen Partner hjá Conscious Consulting um hvað vinnustaðamenning er í raun, hvers vegna hún skiptir sköpum í árangri og af hverju fjárfesting í menningu er ein mikilvægasta ákvörðun fyrirtækja í dag.
Þá segir Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia, frá hvernig Isavia hefur markvisst unnið að því að breyta menningu fyrirtækisins, helstu áskorunum og hindrunum á leiðinni, hvað hefur áunnist og hvert stefnir næst. Sérstök áhersla verður á þá drifkrafta sem hafa gert breytingarnar mögulegar.
Af hverju ættu mannauðsstjórar að eiga sæti við borðið?
Erindið byggir á persónulegri reynslu Erlu Óskar úr ólíkum hlutverkum – sem mannauðsstjóri, framkvæmdastjóri og við stjórnendanám – með áherslu á það sem raunverulega skiptir máli þegar kemur að samvinnu og árangri. Farið verður yfir af hverju það er erfitt að vera góður stjórnandi og hvernig sjálfsþekking, sálfélagslegt öryggi og góð samskipti stuðla að sterkari teymum og auknu virði.
VORRÁÐSTEFNA FAGFÉLAGANNA
Miðvikudagurinn 29. apríl 2026 í Kaldalóni í Hörpu. Mannauður, Stjórnvísi og SKÝ (Skýrslutæknifélagið) taka höndum saman þriðja árið í röð og bjóða félagsfólkinu sína upp á sameiginlega ráðstefnu þar sem fjallað verður um þær mikilvægustu áherslur í stjórnun og rekstri sem mikilvægt er að þekkja vel. Verð: 14.900 kr. fyrir félagsfólk.
Sálræn fyrsta hjálp á vinnustað
Í erindinu verður fjallað um hvernig stjórnendur og mannauðsfólk geta greint merki um vanlíðan, átt uppbyggileg samtöl og veitt sálræna fyrstu hjálp þegar á reynir.
Farið verður yfir:
· Hvernig við lesum merki og grípum inn í áður en vandi verður að krísu
· Hvernig við eigum samtöl af öryggi og fagmennsku
· Hvernig við tengjum starfsfólk við viðeigandi úrræði
Einnig verður fjallað um mikilvægi viðbragðsáætlana á vinnustöðum þegar erfiðir atburðir eða áföll eiga sér stað og hvernig bregðast má fumlaust og af öryggi við þegar á reynir.
Hvað verður um gögnin? Heimsókn til Þjóðskjalasafnsins.
Hvað verður um gögnin sem við mannauðsfólk setjum inn í málakerfin, s.s. ráðningargögn, niðurstaða samtala, veikindagögn, áminningar eða uppsagnir?
Gilda sömu reglur um gögn sem verða til í allskonar öppum og skýjalausnum?
Þarf að skrá og varðveita allt? Fjallað um lagaumgjörð og reglur þegar kemur að skráningu og varðveislu og á hvaða forsendum hún byggir.










