Mannauður ætlar að fara í ráðstefnuferð á HR FORUM 2026 sem haldin verður í Osló 11.-12. nóvember 2026. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Fjárfesting í fólki” Þetta er ráðstefna fyrir skipulagsheildir af öllum stærðum og gerðum, hvort sem þú starfar við mannauðsmál, stjórnun, skipulagsþróun eða umbreytingar í rekstri.
Hver og einn kaupir flugið sitt til Osló sjálfur en ráðstefnuhaldarar bóka gistingu fyrir okkur. Skráið ykkur í gegnum skráningarhlekkinn og Norðmennirnir verða svo í sambandi varðandi staðfestingu á ráðstefnugjaldinu og hótelbókuninni og senda svo reikning þegar nær dregur. Ef einhverjar spurningar vakna hikið ekki við að hafa samband við Sigrúnu framkvæmdastjóra. sigrun@mannaudsfolk.is
Á HR Forum 2026 í Osló verður fjallað um hvað gerist þegar skipulagsheildir starfa í stöðugum breytingum – og hvernig leiðtogar og mannauðsfólk geta færst frá því að bregðast við breytingum yfir í að móta þær. Hvernig byggjum við upp skipulagsheildir sem eru aðlögunarhæfar, seigar og færar um að skila árangri til lengri tíma? Á þessum tveimur dögum færðu innsýn í hvernig skipulagsheildir geta virkjað fólk í umbreytingum, styrkt leiðtogahæfni á tímum flækjustigs og byggt upp menningu sem styður bæði árangur og aðlögunarhæfni. og umbreyta stefnu í framkvæmd. Ráðstefnan sameinar alþjóðleg sjónarhorn, innsýn úr norrænu viðskiptalífi og hagnýt verkfæri sem hægt er að nýta beint í eigin starfsemi.
Smelltu hér til að skrá þig.

