Bjarga, fyrirbyggja, efla, erum við að byrja á öfugum enda?
Ef við rækjum fyrirtæki eins og við rekum íþróttalið, þá myndum við aldrei bíða eftir því að leikmennirnir slösuðust (bjarga). Við myndum ekki heldur láta okkur nægja að fylgjast með álaginu og vona það besta (fyrirbyggja).
Við myndum þjálfa þá.
Við myndum fræða þá um líkama og sál, um álag og endurheimt, um hvað árangur kostar í raun og veru. Við myndum kenna þeim að þekkja sjálfa sig og eigin viðbrögð, að stýra skapi og streitu, að taka ákvarðanir undir pressu. Við myndum kenna þeim samskipti, að setja mörk, að leysa úr ágreiningi, að byggja upp tengsl sem halda þegar á reynir. Og við myndum næra þá, hvíla þá og byggja allt umhverfið utan um þessa vinnu (efla).
Í íþróttum er þetta ekki munaður. Þetta er grunnurinn.
Í atvinnulífinu björgum við eftir getu, fyrirbyggjum sæmilega og eflum sjaldan.
Á fundinum færðu skýra mynd af því:
- hvað sálfélagsleg færni er í raun og veru, og hvers vegna hún er ekki persónuleiki eða „týpa“ heldur færni sem hægt er að læra og efla.
- hvaða færni liggur að baki því sem vinnustaðir glíma við daglega: álagi, erfiðum samtölum, breytingum og nýrri tækni.
- hvernig hægt er að meta hvar þinn vinnustaður stendur á milli þess að bjarga, fyrirbyggja og efla.
- hvernig færnin hefur verið kortlögð svo hún nýtist í raun, í 6 almennar færnir, 20 sértækar og 55 þekkingar- og færniþætti.
- hvað nýjustu rannsóknir segja um árangur slíkrar eflingar, bæði á líðan og frammistöðu, og hvað þær segja ekki.
Bæði Ísland og Frakkland settu sér stefnu um þessa færni árið 2022. Farsældarlögin tóku gildi í janúar, franska stefnan var sett í ágúst. Bæði löndin stöðva við átján ára aldur. Krumma fer yfir hvað það þýðir fyrir okkur hin, sem erum þegar í vinnu, og hvernig hægt er að vinna með þessa færni á vinnustöðum í dag.
Þátttakendur eru hvattir til að hugsa fyrirfram um eina raunverulega áskorun úr eigin starfsemi, og hvort hún kalli á björgun, forvörn eða eflingu.
Fyrirlesari:
Krumma Jonsdottir, árangursráðgjafi og stjórnendamarkþjálfi (EMCC). Stofnandi Positive Performances í París og Reykjavík. Höfundur tveggja bóka um sálfélagslega færni og árangur. Doktorsnemi í stefnumótun og forystu.

