Skip to main content
All Posts By

sigrun

Vinnustofa – Debra og Ken Corey

By Viðburðir

Dagur: 24. mars 2024, kl. 9:00-13:00

Staður: Ármúli 11, 3. hæð (Í  húsnæði Dale Carnegie)

In the workshop we will cover the following:
● Learnthe three A’s of being a great boss- Awareness, Acceptance and Action.
● Understand the 10 types of bad bosses, what causes them, and the impact they have on their
people and business.
● Learnabout the tools required to be a great boss using the The Great Boss Building Block™
Model, both how it will support your bosses and how it can be integrated into your training
strategy and programs.
● Introduce you to techniques and methods of experiential learning (e.g. building good and bad
bosses out of LEGO) so you can experience first-hand how to bring these back to your
organization.
● Hearreal-life stories of bad bosses to help paint the picture of the harm they can cause.
● Hearpractical and actionable tips to take back to your organization

 

Skráning á vinnusstofu

Rafrænn fundur – Helstu áherslur mannauðsmála 2025

By Viðburðir

Dagur: 28. janúar 2025

Tími: 9:00-10:00

Fjarfundur

Jón Jósafat Björnsson og Unnur Magnúsdóttir hjá Dale Carnegie og Viðar Pétur hjá Advania munu fjalla um þær helstu áherslur sem mannauðsfólk og stjórnendur þurfa að hafa í huga á nýju ári.

Skráning á fjarfund

Seigla og jákvæð sálfræði

By Viðburðir

Dagur: 3. mars 2025

Tími: 9:15-10:15

Rafrænn fundur á TEAMs

Á fundinum mun Hrefna Guðmundsdóttir, vinnu- og félagssálfræðingur fjalla um seiglu, jákvæða sálfræði og hamingjuna.
Hvernig er hægt að styrkja seiglu og hvernig geta verkfæri jákvæðrar sálfræði helst nýst á sviði mannauðsmála á vinnustöðum.

Skráning á viðburð

Ráðningar hjá ríkinu – tækifæri og áskoranir

By Viðburðir

Dagur: 24. janúar 2024

Tími: 13:00-15:00

Staður: Hjá Tryggingastofnun, Hlíðarsmára 11, Kópavogi

Mannauður, félag mannauðsfólks hjá ríkinu, í samstarfi við faghópa um ráðningar og mannauðsmál hjá ríkinu, stendur fyrir málþingi föstudaginn 24. janúar nk. Þema málþingsins er tækifæri og áskoranir í ráðningum innan ríkisgeirans. Á dagskrá verða fjölbreytt og fræðandi erindi sem varpa ljósi á ráðningarferlið frá mismunandi sjónarhornum, þar á meðal samanburð á ríki- og einkageira, hlutverk stoðþjónustu opinbera geirans og reynslu ráðningaskrifstofa. Markmið málþingsins er að skoða framkvæmd ráðninga hjá ríkinu, með áherslu á þau tækifæri og áskoranir sem fylgja ferlinu. Fjallað verður um lagaramma opinbera geirans og hvernig hann mótar ráðningarferlið. Að auki verða ræddar spurningar eins og: Stuðlar núverandi umhverfi að því að hæfustu einstaklingarnir séu ráðnir, eða setur það hindranir og þá hverjar? Hvað er vel gert í ráðningarferli hjá ríkinu? Hvaða tækifæri eru til staðar til að bæta ráðningarumhverfi ríkisins? Málþingið er kjörinn vettvangur fyrir fagfólk í mannauðsmálum til að skiptast á hugmyndum, læra af reynslu annarra og stuðla að umbótum í ráðningum hjá opinbera geiranum.

Fundarstjóri Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, sviðsstjóri sviðs fólks, upplýsinga og þróunar hjá Vinnueftirlitinu.

Skráning á málþing

IKEA – Nýjársfagnaður Mannauðs

By Viðburðir

Dagur: 23. janúar 2025

Tími: 16:30-18:30

Staður: Hjá IKEA í Garðabænum

Nýársfagnaður Mannauðs 2025.
IKEA býður félagsfólki Mannauðs í heimsókn og þar ætlar félagið að fagna nýju ári með smá gleði og glæsilegum veitingum.

DAGSKRÁ
– Vaka Ágústsdóttir mannauðsstjóri IKEA mun segja okkur frá nýju breytingunum sem þau hafa verið að ganga í gegnum.
– Formaður Mannauðs, Adriana K. Pétursdóttir mun fara örstutt yfir liðið ár og þær áskoranir sem við stöndum fyrir á nýju ár.
– Sóli Hólm kemur í heimsókn með sitt vinsæla uppistand.

Skráning á viðburð

Mannauðsmælikvarðar

By Viðburðir

Dagur: 11. febrúar 2025

Tími: 9:00-11:00

Á þessu námskeiði ætlum við að læra um og ræða alls kyns mannauðstölfræði og mælingar, bæði einfaldar og flóknari mælingar og formúlur.

Við munum ræða saman um og svara m.a. eftirfarandi:

  • Hvernig á að reikna út ýmsa algenga mannauðstölfræði, t.d. starfsmannaveltu, nýliðun o.fl.?
  • Hvernig getum við tengt mannauðstölfræðina betur við rekstrarniðurstöður vinnustaðarins?
  • Hvernig á að reikna út aðra flóknari mannauðstölfræði eins og t.d. arðsemi mannauðs?
  • Hvernig má tengja saman ólíkar mælingar og tölur frá vinnustaðnum til að greina eigin trend, að sjá betur hvað er að gerast á vinnustaðnum?
  • Hvað segja tölurnar okkur og hvernig má nýta þær til að taka betri ákvarðanir?
  • Hvernig er hægt að koma sér upp góðu mannauðs-mælaborði – hvort sem til staðar er þróað mannauðskerfi, sjálfvirknivædd mælaborð eða ekki.
  • Hvaða tölur hjálpa til við að ná eyrum fjármálastjóra og forstjóra?
  • Samvinna með fjármáladeildum o.fl.

Á námskeiðinu eru engar spurningar vitlausar.

Meginmarkmið námskeiðsins er að gera fólk öruggara með mannauðstölfræði og mælingar, enda á mannauðsfólk oft mikið af gögnum sem nota má mun betur til að bæta yfirsýn og skilning á því hvað er að gerast, taka betri ákvarðanir og eiga betra samtal við aðra stjórnendur vinnustaðarins.

Í lok námskeiðs ættu allir að vera búnir að fá betri innsýn og skilning á mannauðstölfræði og læra alls kyns skemmtilegar formúlur.

Skráning á fjarfund

Nýjustu áherslur í mannauðsmálum 2025

By Viðburðir

Dagur: 9. janúar 2025

Staður: Hjá Dale Carnegie í Ármúla 11, Reykjavík

Jón Jósafat Björnsson og Unnur Magnúsdóttir hjá Dale Carnegie bjóða félagsfólki á vinnustofu þar sem fjallað verður um þær helstu áherslur sem mannauðsfólk og stjórnendur þurfa að hafa í huga á nýju ári.

Skráning á vinnustofu

Er þinn vinnustaður klár í kombakk?

By Viðburðir

Dagur: 30. janúar 2025

Tími: 9:00-10:00

Staður: Hjá VIRK, Borgartúni 18, 105 Reykjavík

Hvernig stuðlar mannsauðsfólk að farsælli endurkomu inn á vinnumarkaðinn?

VIRK býður mannauðsfólki úr atvinnulífinu á fræðandi og hvetjandi morgunverðarfund þar sem farið verður yfir hvernig hægt er að stuðla að farsælli endurkomu einstaklinga til vinnu. Teymið á bak við atvinnutengingu VIRK, ásamt sérfræðingum, deilir reynslu og verkfærum til að auðvelda fyrirtækjum að taka vel á móti starfsfólki aftur til starfa, jafnt nýju sem gömlu.

Á fundinum verður sérstaklega horft til ólíkra þarfa einstaklinga, hvort sem þær tengjast líkamlegum eða andlegum hindrunum, hvort skert starfsgeta sé til staðar eða lítil starfsreynsla á vinnumarkaði. VIRK kynnir sína nálgun og þjónustu, með áherslu á mikilvægi stuðnings og samvinnu mannauðsfólks.

 Að lokum: Atvinnulífstenglar VIRK verða til staðar fyrir spjall og umræður. Þetta er kjörið tækifæri til að læra meira og spyrja beint út í möguleika á samstarfi við VIRK.

Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara – fáðu innsýn í hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til að skapa sterkara vinnuumhverfi fyrir öll!

 Dagsetning: 30. janúar 2025
Tímasetning: 09:00-10:00
Staðsetning: Borgartún 18, 105 Reykjavík
(Um er að ræða staðfund)

 Skráðu þig núna og tryggðu þér sæti!

 

Skráning á fundinn

Jólabingó Mannauðs 2024

By Viðburðir

Dagur: 4. desember 2024

Tími: 17:30-18:30 (klukkutími)

Rafrænt á TEAMS

Jólabingó fyrir alla fjölskylduna. Ótrúlega margir og stórglæsilegir vinningar.  Allir í fjölskyldunni mega spila með.
Bingóhlekkur og fundarhlekkur sendur þegar nær dregur.

Anna Claessen hjá Happy Stúdíó stjórnar.

VINNINGAR:
-FLYOVER ICELAND – gjalfabréf

-ARCTIC ADVENTURES GROUP – 3 gjafabréf (Snorklað í Silfru, Into the Glacier og Rauðhólshellir)
-KJARNAFÆÐI / NORÐLENSKA – jólakjötið (hangikjöt, hamborgahryggur og heiðalambalæri)
-ISLANDIA – 2 gjafabréf (Snjósleðaferð og Jökulganga)
-DALE CARNEGIE – gjafabréf

-SKY LAGOON – gjafabréf í lónið

-LAUGAR SPA – gjafabréf í Betri Stofuna
-BRIKK – föstudagskaffi fyrir 20 manns

-BLÁA LÓNIÐ  – gjöf
-ÍSLANDSHÓTEL/FOSSHÓTEL – gjafabréf

-ÚTILÍF – gjöf

-BORGARLEIKHÚSIÐ – gjafabréf

-BIOEFFECT – gjöf

-MYLLAN-ORA – gjafabréf  og jólakökur

-ARENA GAMING – gjafabréf

-SMÁTRÉ – gjöf (Lágtré með perluböndum)

AUKAVINNINGAR: Jólahúfur með ljósaseríu og jólasælgætispokar frá NÓA.
Öll börn sem taka þátt (þó þau vinni ekki, frá jólasælgætispoka frá NÓA

Skráning á viðburð

Spjall með Bergi Ebba

By Viðburðir

Dagur: 4. desember 2024

Tími: 9:15-10:00

Rafrænn fundur á TEAMS

Bergur Ebbi, framtíðarfræðingur, leikari, uppistandari, rithöfundur, ljóðskáld, tónlistamaður og lögfræðingur býður félagsfólki í spjall um  „Húmor og mikilvægi jákvæðni og gleði í starfsmannahópnum“.
Bergur Ebbi er einn af reyndustu uppistöndurum landsins og hefur áralanga reynslu af fyrirlestrahaldi jafnt alvarlegur sem gamansömum.

Skráning á viðburð