CRANET 2026 – Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi
Kynntar verða lykilniðurstöður, lykilmælikvarðar, þróun og alþjóðlegur samanburður á sviði mannauðsmála úr CRANET rannsókninni 2026. CRANET-rannsóknin er alþjóðlegt samstarfsverkefni um 40 háskóla í jafnmörgum löndum sem framkvæma reglubundið kannanir meðal mannauðsstjóra í aðildarlöndunum fyrir samanburðar-og langtímarannsóknir á sviði mannauðsmála. Markmiðið er að viðhalda og byggja upp þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar í hverju landi fyrir sig – sem og alþjóðlega.
Jólabingó Mannauðs fyrir alla fjölskylduna
Hið geysivinsæla JÓLABINGÓ allrar fjölskyldunnar. Allir mega spila með og öll börn sem taka þátt fá jólaglaðning frá Mannauði.
Glæsilegir vinningar eru í boði m.a. frá Kjarnafæði/Norðlenska, Sky Lagoon, FlyOverIceland, YAY, IKEA, Þjóðleikhúsið, Óskaskrín, Útlilíf, S4S, Laugar SPA, Bláa Lónið, IHANNA Home, Volcano Express, IKEA og Freyju.
Öll börn sem taka þátt fá jólaglaðning.
Línudans stjórnenda- Að finna jafnvægið milli stuðnings, ábyrgðar og heilbrigðra marka.
Í þessu fræðsluerindi verður fjallað um jafnvægið sem einkennir góða stjórnun. Farið verður yfir algengar gildrur, hvort sem stjórnendur taka á sig of mikla eða of litla ábyrgð og hvernig hægt er að byggja upp heilbrigð mörk, efla ábyrgð starfsfólks en jafnframt styðja við það og skapa traust samstarf.
Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi þess að stjórnendur og mannauðsfólk hlúi að eigin vellíðan, setji vinnunni skýr mörk og verði þannig betri fyrirmyndir fyrir starfsfólk sitt.
HR FORUM 2026 í Osló
Mannauður ætlar að fara í ráðstefnuferð á HR FORUM 2026 sem haldin verður í Osló 11.-12. nóvember 2026. Þetta er 2 daga ráðstefna sem þeir kalla „Investing in people“. Ráðstefnan verður haldin í NOVA STUDIOS í Lillestrøm. Gist verður á Hotel Scandic Lillestrøm. Verðið fyrir okkur er 17.190 NOK og inniheldur ráðstefnuna, 3 hótelnætur, hádegismat báða dagana og „Mingling partý“ á miðvikudagskvöldið. Hver og einn sér um að greiða og bóka flugið sitt sjálfur.
FULLt – NÁMSKEIÐ – fyrir lengra komna.
Vinnustofa fyrir þá sem eru „lengra komnir“.
Snemmtaka lífeyris, hvaða verkfæri hefur HR
Hvað gerist á vinnustaðnum þegar stór hópur lykilstarfsfólks velur snemmtöku lífeyris — og hvernig getur HR breytt því úr áhættu í tækifæri?
Sífellt fleiri skoða snemmtöku lífeyris og hlutastarf sem leið til meiri sveigjanleika. Fyrir vinnustaði getur þetta þýtt bæði tækifæri og áskoranir. Í erindinu rýnum við í hvaða hvatar ýta undir snemmtöku, hvaða áhrif hún getur haft á vinnumarkað og vinnustaði og sýnum hagnýtar leiðir til að byggja upp stefnu og samtal við starfsfólk.
Collaboration, Communication & Adaptability at Work
On Friday, October 30, at 11 am GMT, we’re organising a FREE online 60-minute workshop designed for leaders, HR professionals, and team members alike.
We will demonstrate how to move past one-off team activities and experience practical, science-backed tools your teams can use immediately to communicate smoothly, adapt quickly, and collaborate with confidence.
It is the perfect pre-lunch snack if you are in Reykjavík, or a tasty treat wherever else you are in the world. We will use Zoom to connect, collaborate, and adapt together!
Bjarga, fyrirbyggja, efla – erum við að byrja á öfugum enda? Krumma Jónsdóttir.
Ekkert íþróttalið bíður eftir því að leikmaður slasist. Þjálfun, hvíld og undirbúningur eru ekki munaður sem gripið er til ef tími gefst. Þau eru grunnurinn.
Í atvinnulífinu gerum við oft öfugt. Við björgum eftir getu. Við fyrirbyggjum sæmilega. En við eflum sjaldan. Að þekkja sjálfan sig og eigin viðbrögð. Stýra streitu. Eiga erfitt samtal. Setja mörk. Þetta er ekki persónuleiki og ekki „týpa“, heldur sálfélagsleg færni (WHO, 1993) sem hægt er að læra og efla, alveg eins og vöðva. Í þessu erindi fer Krumma Jonsdottir yfir hvernig sú efling fer fram og hvað nýjustu rannsóknir segja um árangurinn.
When Collaboration Isn’t Enough
Flestar skipulagsheildir glíma ekki við það vandamál að fólk vilji ekki vinna saman. Vandinn liggur frekar í því að kerfin, skipulagið og mannauðsferlarnir sem umlykja vinnuna gera árangursríka samhæfingu erfiða. Fundurinn hefst kl. 10:00 á íslenskum tíma og er rafrænn.
Á þessum gagnvirka rafræna „masterclass“ mun Jody Hoffer Gittell fjalla um það hvers vegna samhæfing – fremur en samvinna – er oft raunverulega áskorunin. Hún mun jafnframt sýna hvernig mannauðsfólk getur gegnt lykilhlutverki í að skapa þær aðstæður sem þarf til að efla árangur skipulagsheilda.
UPPSELT – Verkleg vinnustofa 19. október – Gervigreind í mannauðsstjórnun
Á þessari vinnustofu fá þátttakendur verklega þjálfun í að nota ChatGPT eða Claude í daglegum mannauðsstörfum. Við vinnum með raunhæf verkefni tengd mannauðsmálum og fáum gervigreindina til þess að vinna fyrir okkur.
Þátttakendur læra að búa til einfalda erindreka (agents) sem aðstoða við endurtekin verkefni og skoða hvernig tengja má gervigreind við önnur verkfæri, eins og tölvupóst, dagatal og fleira. Áherslan er á að spara tíma án þess að fórna mannlegu mati, trúnaði eða gæðum.
Við förum jafnframt yfir hvernig regluverk frá ESB hefur áhrif á notkun gervigreindar í mannauðsmálum og hvað er framundan.










