Leadership Development Day – UPPSELT í ferðina
Dönsku mannauðssamtökin NOCA hafa boðið okkur í Mannauði í heimsókn til sín 16. apríl n.k. á ráðstefnuna LEADERSHIP DEVELOPMENT DAY sem haldin verður í Frederiksberg í Kaupmannahöfn.
Ráðstefnan hefst kl. 9:30 og lýkur kl. 15:30.
Við erum að skoða fyrirtækjaheimsókn samhliða ráðstefnunni.
Á ráðstefnunni verður fjallað um það þegar flækjustig er ekki lengur undantekning heldur daglegt ástand, þá breytast kröfur til leiðtoga og til þeirra sem vinna að leiðtogaþjálfun. Og það erum við mannauðsfólkið sem berum ábyrð á því.
Þeir mæla með gistinu á Scandic Falkoner hótelinu, Falkoner Alle 9, Frederiksberg sem er nálægt ráðstefnusalnum.
Hægt er að fljúga bæði með Icelandair og SAS beint.
Hvetja sig áfram með samkennd!
Fjallað verður um hvernig við getum dregið úr streitu og eflt innri styrk og seiglu með því að þjálfa góðlátlegt sjálfstal. Lögð er áhersla á að nálgast sjálfan sig með samkennd í stað sjálfsgagnrýni og hörku. Erindið byggir á aðferðum úr Compassion Focused Therapy (CFT) og Mindful Self-Compassion (MSC), sem sameina núvitund, samkennd í eigin garð og taugasálfræðilegan skilning á streituviðbrögðum líkamans.
HR in 2026: Turning Evidence into Action.
This European-focused webinar explores what the latest CPA 2026 evidence means for HR priorities in the year ahead, with two deep dives into Generative AI and skills-led HR. Insights from BCG will be complemented by a CPO and researcher panel, translating evidence into real organisational implications.
HR leaders across Europe are navigating rapid change. Generative AI, skills disruption and rising business expectations are reshaping how organisations operate and how people strategies create value.
The Creating People Advantage 2026 survey, led by Boston Consulting Group and the World Federation of People Management Associations and supported by EAPM, brings together more than 7,000 responses from 116 countries. The findings highlight where organisations are accelerating, where capability gaps are emerging, and which HR priorities require attention now.
Er í lagi að kvarta á þínum vinnustað?
Kvartanir á vinnustöðum eru oft túlkaðar sem neikvæðni, mótþrói eða persónulegur vandi þess sem kvartar eða kvartað er undan og starfsfólk sem bendir á það sem betur má fara fær gjarnan á sig stimpilinn „erfitt“ eða „leiðinlegt“. Í mörgum tilvikum eru kvartanir þó fyrsta vísbending um að eitthvað sé ekki eins og það á að vera í samskiptum, skipulagi eða vinnustaðamenningu.
Í þessum fyrirlestri er fjallað um hvað kvartanir eru að segja okkur, hvað gerist þegar vinnustaðir hlusta ekki og hvernig bregðast þarf við áður en þær þróast í alvarleg mál, átök eða jafnvel einelti. Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum í vinnusálfræði og reynslu af úrvinnslu krefjandi mála og miðar að því að styrkja vinnustaði í að takast á við kvartanir á uppbyggilegan hátt.
Páskabingó fjölskyldunnar 2026
Páskabingó fjölskyldunnar fer fram fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 17:30-18:30. Árlegur og vinsæll rafrænn fjölskylduviðburður þar sem spilað er bingó saman og glæsileg páskaegg eru í vinning. Öll börn sem taka þátt fá lítið páskaegg fyrir þátttökuna.
H.Í – Viðskipti og vísindi
Háskóli Íslands og Mannauður í samstarfi við 50skills bjóða upp á fyrirlestur sem fjallar um það hvernig gervigreindin muni breyta ráðningum og mannauðsstjórnun á næstu árum? Í erindinu færðu innsýn í hvernig fyrirtæki eru þegar farin að nýta gervigreind til að finna hæfileika, bæta ráðningarferli og styðja við betri ákvarðanatöku í mannauðsmálum. Kristján Kristjánsson frá 50skills deilir reynslu úr framkvæmd og sýnir hvað þessi þróun þýðir fyrir stjórnendur og framtíð vinnumarkaðarins.
Fyrirlesturinn er í tengslum við vikuna „Viðskipti og vísindi“ sem háskólinn stendur fyrir.
Fyrirlesarari: Kristján F. Kristjánsson,framkvæmdastjóri 50skills og sérfræðingur í gervigreind.
Ekki þarf að skrá sig á viðburðinn, heldur mæta bara.
Staður: Háskólatorg 101
Dagur: 18. mars 2026 kl. 12:00-13:30
Þekkjum merkin og bregðumst við!
Á fundinum fjöllum við um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig stuðningur atvinnurekenda getur skipt sköpum fyrir starfsfólk sitt. Vinnustaðurinn er oft eina tenging þolanda við samfélagið og einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda. Styðjandi viðbrögð stjórnanda eða samstarfsfólks geta brotið þá einangrun.
Kynnt verður ný tryggingavernd, stuðningsleyfi, sem er nú hluti af slysatryggingum fyrirtækja. Stuðningsleyfið auðveldar atvinnurekendum að veita launað leyfi í allt að tvær vikur, svo starfsmaður geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap. Einnig verður fjallað um reynslu af innleiðingu aðgerðaráætlana fyrirtækja og mikilvægi þess að þolendur upplifi öryggi, stuðning og valdeflingu.
Kaffispjall Faghóps um mannauðsmál hjá ríkinu
Kaffispjall Faghóps Mannauðs um mannauðsmál hjá ríkinu. Fundurinn verður haldinn á Te&Kaffi í Borgartúninu, 16. mars kl. 8:-30-9:30. Fundurinn er opinn öllum og það þarf ekki að skrá sig, bara mæta.
Skráning á HR TECH 2026
HR TECH 2026 fer fram þriðjudaginn 10. mars 2026 í Silfurbergi í Hörpu kl. 09:00-13:00. Ráðstefnan fjallar um nýjustu tækni, aðferðir og tól í mannauðsmálum sem móta framtíð vinnustaða. Aðalfyrirlesarar eru Christine Armstrong og Prithwiraj Choudhury. Fundarstjóri er Ketill Berg Magnússon.
Lífeyrismál fyrir mannauðsfólk
Rafrænn fyrirlestur um lífeyrismál fyrir mannauðsfólk þar sem farið er yfir helstu tímamót starfsævinnar og hlutverk mannauðsstjóra í að styðja starfsfólk með fræðslu og öryggi. Jenný Ýr Jóhannsdóttir, viðskiptastjóri hjá Lífeyrissjóði Verzlunarmanna, fjallar um hvernig mannauðsfólk getur með hagnýtum hætti nýtt þekkingu sína án þess að vera sérfræðingur í lífeyrismálum.










