Hvernig þjálfum við starfsfólk til að nota gervigreind af alvöru?

Fjallað verður um hvernig færa má starfsfólk frá einfaldri notkun gervigreindar yfir í að hún verði hluti af daglegu vinnulagi, þannig að ánægja, gæði og afköst aukist.

Á fundinum færðu skýra mynd af því:

  • hvaða þjálfun starfsfólk þarf til að nýta gervigreind í daglegum störfum.
  • hvernig hægt er að færa starfsfólk frá einfaldri notkun gervigreindar yfir í markviss vinnubrögð með hana. 
  • af hverju skipulag upplýsinga og samhengi innan skipulagsheildar skiptir lykilmáli við upptöku gervigreindar.
  • hvernig gervigreindarvinnubekkir (AI harness) geta hjálpað starfsfólki að fanga réttar upplýsingar og setja þær í samhengi svo hægt sé að nýta þær markvisst.
  • hvaða fyrstu skref þarf að taka til að hefja vegferðina að gervigreindardrifinni skipulagsheild (AI native).

Stefán mun fjalla um nýtt vinnulag við innleiðingu gervigreindar sem er að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum, þar sem upplýsingar, samhengi og verkefni eru sett fram þannig að gervigreind nýtist markvisst í daglegri vinnu.

Fyrirlesari:
Stefán Gunnarsson, tölvunarfræðingur og frumkvöðull.