Á Mannauðsdeginum í ár verður fjallað um mörg af mikilvægustu verkefnum mannauðsfólks og stjórnenda fyrirtækja.
Í síbreytilegum heimi nær stefna fyrirtækja fyrst árangri þegar hún er knúin áfram af fólki og fólk er sett í forgang og mannauður sé stefnumótandi samstarfsaðil sem mótar menningu, styður við umbreytingar og virkjar mannlega hæfileika til að skapa raunverulegt samskeppnisforskot.
Stjórnun í dag snýst sífellt meira um að leiða fólk í gegnum breytingar og hlúa að menningu nýsköpunar, samkenndar og fjölbreytileika. Þetta krefst færni í tilfinningagreind, aðlögunarhæfni og menningarvitund. Í breyttum veruleika gegnir mannauðsfólk lykilhlutverki í að móta leiðtoga framtíðarinnar.
Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti tengslamyndunarviðburður stjórnunar og mannauðsmála hér á landi. Hann sameinar mannauðssérfræðinga, stjórnendur, ráðgjafa, frumkvöðla og áhrifavalda í faginu. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig mannauður umbreytir árangri fyrirtækja með því að setja fólk í forgang
Mannauðsdaginn sækja vel fyrir 1.200 ráðstefnugestir. Samhliða ráðstefnunni munu um 140 fyrirtæki sýna vörur sínar og þjónustu á glæsilegri sýningu.

