Faghópur um vinnustaðamenningu hjá Mannauði býður til morgunfundar þar sem fjallað verður um rannsóknir á íslenskri vinnustaðamenningu og reynslu fyrirtækja af því að vinna markvisst með hana.
Hvað einkennir íslenska vinnustaðamenningu?
Vinnustaðamenning er flókið og margþætt fyrirbæri, en er hægt að tala um sérstaka íslenska vinnustaðamenningu? Gylfi Dalmann hefur ásamt samstarfsfólki rannsakað menningu íslenskra vinnustaða með mælingum samkvæmt Denison-aðferðinni. Í erindinu greinir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor í mannauðsstjórnun við H.Í. frá niðurstöðum þessara rannsókna og veltir upp þeirri spurningu hvort greina megi sameiginleg einkenni í vinnustaðamenningu íslenskra skipulagsheilda.
Pallborðsumræður
Að erindinu loknu ræða stjórnendur frá Kolibri, BYKO og Isavia um vegferð fyrirtækjanna í uppbyggingu vinnustaðamenningar. Þau segja frá áherslum sínum, helstu áskorunum og því sem þau hafa lært á leiðinni, meðal annars á tímum breytinga og erfiðleika. Einnig deila þau hagnýtum ráðum til fyrirtækja sem vilja efla heilbrigða vinnustaðamenningu.
Í pallborðinu verða:
- Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Kolibri.
- Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO.
- Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

