Skip to main content

Námskeið – Sóley Tómasdóttir

By ágúst 18, 2023Viðburðir

Dagur: 26. september 2023

Tími: 9:00-12:00

Staður: GALA – ráðstefnusalur á Smiðjuvegi 1, Kópavogi

Námskeiðið er í boði Mannauðs fyrir félagsfólk

AÐ RUGGA BÁTNUM ÁN ÞESS AÐ VELTA HONUM

Námskeið um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu fyrir mannauðsstarfsfólk. Fjallað verður um helstu áskoranir í málaflokknum og hvernig hægt er að takast á við þær. Ástæður og afleiðingar valdatengsla, viðmiða, frávika, útilokandi/óviðeigandi framkomu verða ræddar og kynntar leiðir sem hægt er að fara til að stuðla að jákvæðri og inngildandi menningu á vinnustaðnum.

Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru:

  • Eðli og áhrif útilokandi vinnustaðarmenningar
  • Hvernig get ég stuðlað að inngildandi vinnulagi og ferlum?
  • Hvernig get ég stuðlað að inngildandi menningu á mínum vinnustað?

Sóley Tómasdóttir hjá Just Consulting er leiðbeinandi námskeiðsins sem hún byggir á eigin reynslu af stjórnmálum, stjórnun og aktívisma í bland við niðurstöður akademískra rannsókna á jafnréttisstarfi fyrirtækja.

ATH!

Til að fá sem mest út úr námskeiðinu er mælt með því að þátttakendur taki a.m.k. eitt próf á þessari slóð. Sérstaklega er mælt með Gender-Career, Gender-Science, race, weight, age and disability.

Skráning á námskeið

Ljósmyndir eru teknar á viðburðum félagsins og einnig mæta fjölmiðlar stundum á staðinn. Gestir geta því átt von á að teknar séu myndir af þeim og birtar í tengslum við viðburði Mannauðs.