Aðalfundur Mannauðs 2026 fyrir rekstrarárið 2025
Aðalfundur Mannauðs fer fram fimmtudaginn 26. febrúar kl. 16:30-17:30 á Teams. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar, reikningar, árgjald 2026, lagabreytingar og stjórnarkjör, auk umræðna um verkefni og áherslur næsta árs.
Viðverustjórnun – Frá viðbrögðum til árangurs.
Erindið fjallar um að greina snemma merki í gögnum vinnustaða, svo sem fjarveru, starfsmannaveltu og niðurstöður starfsmannapúlsa, og skilja þau sem vísbendingar um undirliggjandi áskoranir. Áhersla er lögð á forvarnir fremur en viðbrögð, þar sem stjórnendahæfni, regluleg samtöl og fyrirsjáanleiki skipta máli.
Hilja sýnir hvernig nýta má gögn á mannlegan og uppbyggilegan hátt án þess að þau verði eftirlitstæki, og hvernig grípa megi fyrr inn með því að þekkja einkenni og rauð flögg. Erindið byggir á raunverulegum dæmum og reynslu af forvörnum og viðverustjórnun í íslenskum vinnustöðum.
Workshop For HR Professionals
The focus of this workshop will be Communication and Creativity in the workspace. These are the top two skills YOU voted as most important and most in need of development within your teams!
Here, you’ll get to experience the work first-hand. No lectures, no slides. Just serious play that transforms how teams connect, collaborate, and create.
Jákvæð forysta – Eyþór Eðvarðsson
Fyrirlestur um jákvæða forystu – vísindalega studda kenningu sem tengir stjórnun, samskipti og menningu með hagnýtum hætti. Eyþór Eðvarðsson fjallar um hugmyndir Kim Cameron og hvers vegna þessi nálgun getur haft raunveruleg áhrif á vinnustaði og fólk. Rafrænn fundur á Teams þriðjudaginn 17. febrúar kl. 09:15-10:15.
Hádegisverðarfundur í boði Alfreðs í Hofi á Akureyri
Alfreð í samvinnu við Faghóp Mannauðs á Noðrulandi, býður félagsfólki í hádegisverð og spjall þar sem m.a “Hæfnileit Alfreðs” verður kynnt – nýr valkostur í ráðningum. Léttur hádegisverður frá Majó í boði á fundinum.
Palli var einn í heiminum
Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig það er að bera ábyrgð á mannauðsmálum án teymis eða faglegs baklands, bæði styrkleika og áskoranir hlutverksins. Ólafur rýnir í tilfinningalegt og faglegt álag sem getur fylgt stöðunni, hvað getur farið úrskeiðis ef einangrun varir of lengi og hvernig nýta má styrkleikana án þess að brenna út. Einnig verða kynntar leiðir til að draga úr áhættu, setja skýr mörk og efla faglegt sjálfstæði.
Rafrænn fundur – Stjórnunarstraumar
Rafrænn fundur um helstu stjórnunarstrauma og áherslur í mannauðsmálum 2026. Rýnt verður í nýjar hugmyndir og aðferðir, breytt hlutverk mannauðsmála í stjórnun og ákvarðanatöku, og hvernig nýta má bæði nýjungar og enduruppgötvaða „klassík“ til að styrkja árangur og mannauð skipulagsheilda.
Gervigreind snýst um fólk, ekki bara tækni.
Á fundinum fjallar Þórey V. Proppé um hvernig mannauður, menning og færni skipta lykilmáli í innleiðingu gervigreindar. Lögð er áhersla á að árangur í notkun gervigreindar ráðist ekki einungis af tæknilegum lausnum, heldur af því hvernig fólk, hæfni og vinnustaðamenning styðja við breytingar og nýja nálgun í starfi.
Virkari viðverustjórnun hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg styrkir viðverustjórnun með því að veita stjórnendum aðgang að sérfræðingum sem styðja við heilsu, vellíðan og lægri veikindafjarvistir. Aðgerðin er viðbót við núverandi viðveru- og heilsustefnu og miðar að markvissari stuðningi við stjórnendur.
Vinnustofa – Stjórnunarstraumar
Vinnustofa um stjórnunarstrauma og áherslur í mannauðsmálum 2026, haldin sem staðarfundur hjá Dale Carnegie í Ármúla 11. Fjallað verður um nýjar hugmyndir og aðferðir, þróun hlutverks mannauðsmála í stjórnun og hvernig nýta má bæði nýjungar og enduruppgötvaða „klassík“ til að styrkja árangur og mannauð skipulagsheilda.










