Kynning á ÁTTINNI

 

Mörg fyrirtæki vita ekki af því að þau geta átt rétt á og sótt um styrk vegna fræðslu og starfsþróunar starfsfólks.

Áttin er sameiginleg umsóknargátt starfsmenntasjóða á almennum vinnumarkaði sem einfaldar fyrirtækjum að sækja um þessa styrki vegna fræðslu og hæfniþróunar starfsfólks.
Í gegnum Áttina geta fyrirtæki sótt um styrkina og byggt þannig upp þá þekkingu og hæfni sem þarf til að mæta breytingum og áskorunum framtíðarinnar.

Á fundinum mun Selma Kristjánsdóttir kynna hvað fyrirtækjum stendur til boða.