Vinnustaðamenning sem drifkraftur árangurs

Stjórn faghóps um vinnustaðamenningu býður til fyrsta viðburðar síns þriðjudaginn 6. maí hjá Isavia, þar sem sjónum er beint að hlutverki stjórnenda og mannauðsfólks í að byggja menningu sem styður við árangur, traust og vellíðan.
Á viðburðinum flytur Torben Nielsen Partner hjá Conscious Consulting hugvekjandi erindi um hvað vinnustaðamenning er í raun, hvers vegna hún skiptir sköpum í árangri og af hverju fjárfesting í menningu er ein mikilvægasta ákvörðun fyrirtækja í dag.
Þá segir Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia, frá hvernig Isavia hefur markvisst unnið að því að breyta menningu fyrirtækisins, helstu áskorunum og hindrunum á leiðinni, hvað hefur áunnist og hvert stefnir næst. Sérstök áhersla verður á þá drifkrafta sem hafa gert breytingarnar mögulegar.
Viðburðurinn er ætlaður stjórnendum og mannauðsfólki sem vinna daglega með fólki og teymum og vilja styrkja sig í markvissri menningarvinnu. Þetta er vettvangur fyrir samtal, lærdóm og tengslamyndun fólks sem deilir sama áhuga og metnaði í að ná árangri í gegnum uppbyggjandi vinnustaðamenningu.
Athugið að viðburðurinn fer fram bæði á íslensku og ensku.
Hvenær: 6.maí kl 9-10:30
Hvar: Dalshraun 3, 1.hæð, Hafnarfirði