Brjótum múrana – byggjum árangur!

Edda fjallar um mikilvægi þverfaglegrar samvinnu innan fyrirtækja sem drifkraft framúrskarandi árangurs. Alltof oft standa ósýnilegir deildarmúrar í vegi fyrir árangursríkri samvinnu milli teyma, sem dregur úr hraða, gæðum og heildarárangri.
Í fyrirlestrinum fer Edda  yfir hagnýtar leiðir til að brjóta niður þessa múra, efla samvinnu og skapa sameiginlega sýn sem skilar betri niðurstöðum, bæði fyrir starfsfólk og rekstur.