Viðburðir Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi eru vettvangur fyrir fróðleik, fagleg samskipti og ný tækifæri.
Stefnumót við Röggu Nagla og heimsókn í Sky Lagoon – 10. september
Við ætlum að hefja veturinn með skemmtilegum fundi með Röggu Nagla í Sky Lagoon. Eftir fundinn er okkur boðið í lónið.
CRANET 2026 – Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi
Kynntar verða lykilniðurstöður, lykilmælikvarðar, þróun og alþjóðlegur samanburður á sviði mannauðsmála úr CRANET rannsókninni 2026. CRANET-rannsóknin er alþjóðlegt samstarfsverkefni um 40 háskóla í jafnmörgum löndum sem framkvæma reglubundið kannanir meðal mannauðsstjóra í aðildarlöndunum fyrir samanburðar-og langtímarannsóknir á sviði mannauðsmála. Markmiðið er að viðhalda og byggja upp þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar í hverju landi fyrir sig – sem og alþjóðlega.
Stígðu fram – sigraðu ræðukvíðann.
Á fundinum mun Gunnar fjalla um ræðukvíðann sem stór hluti starfsmanna fyrirtækja glímir við og háir þeim bæði í starfi og í þeirra persónulega lífi.
Erindið nýtist öllum hvort sem þeir glíma við ræðukvíðann eða ekki, því Gunnar mun benda á gagnlegar leiðir og verkfæri sem nýtast öllum til að kynna verkefni og koma fram.
Mannauðsstjórar eru lykiláhrifavaldar í innleiðingu gervigreindar
Innleiðing gervigreindar er ekki fyrst og fremst tæknilegt verkefni – hún er menningarleg umbreyting sem snertir allt starfsfólk. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvers vegna mannauðsstjórar gegna lykilhlutverki í þessari vegferð: að leiða breytingar á vinnubrögðum, styðja starfsfólk í að tileinka sér nýja tækni og takast á við ótta og mótstöðu tengda sjálfvirknivæðingu. Farið verður yfir raunhæfar áskoranir, dæmi og hagnýtar leiðir til að byggja upp traust, hæfni og jákvætt viðhorf til gervigreindar innan skipulagsheilda.
EKKO eða gráa svæðið!
Vigdís mun kynna afrakstur vinnu sem starfsfólk Lífs og sálar, ásamt hópi mannauðsfólks, vann vorið 2023 þar sem kafað var dýpra ofan í hugtök og orðskýringar á gráa svæðinu, þar sem norsk vinnuverndarlöggjöf var höfð til fyrirmyndar. Líf og sál hélt vinnunni áfram og í dag hefur litið dagsins ljós skýringarmynd sem er hagnýtt tól fyrir stjórnendur og starfsfólk.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessi mál auk þess sem myndin verður kynnt nánar sem tól til að skapa skýrari ramma og vettvang til frekara samtals um hegðun og framkomu á vinnustöðum.
Hvernig þjálfum við starfsfólk til að nota gervigreind af alvöru?
Fjallað verður um hvernig færa má starfsfólk frá einfaldri notkun gervigreindar yfir í að hún verði hluti af daglegu vinnulagi, þannig að ánægja, gæði og afköst aukist.
Stefán mun fjalla um nýtt vinnulag við innleiðingu gervigreindar sem er að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum, þar sem upplýsingar, samhengi og verkefni eru sett fram þannig að gervigreind nýtist markvisst í daglegri vinnu.
Fyrirlesari:
Stefán Gunnarsson, tölvunarfræðingur og frumkvöðull.
Mannauðsdagurinn 2026
Taktu frá daginn!
Mannauðsdagurinn 2026 verður haldinn föstudaginn 2. október n.k. í Hörpu. Á Mannauðsdeginum í ár verður fjallað um mörg af mikilvægustu verkefnum mannauðsfólks og stjórnenda fyrirtækja. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti tengslamyndunarviðburður stjórnunar og mannauðsmála hér á landi. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig mannauður umbreytir árangri fyrirtækja með því að setja fólk í forgang. Stjórnun í dag snýst sífellt meira um að leiða fólk í gegnum breytingar og hlúa að menningu nýsköpunar, samkenndar og fjölbreytileika. Þetta krefst færni í tilfinningagreind, aðlögunarhæfni og menningarvitund. Í þessum breytta veruleika gegnir mannauðsfólk lykilhlutverki í að móta leiðtoga framtíðarinnar.
Nánari upplýsingar um fyrirlesara, dagskrá og skráning opnar þegar nær dregur.
Vinnustofa – 1/2 dagur með John Mark Williams CEO og stjórnunarráðgjafa frá The Institute of Leadership.
Í tengslum við Mannauðsdaginn bjóðum við upp á 1/2 dags vinnustofu með John Mark Williams, CEO frá The Institute of Leadership og fyrirlesara Mannauðsdagsins.
Heimsókn til Símans – Mótivation er lykilþáttur þegar kemur að fræðslu og þjálfun.
Síminn leggur mikla áherslu á fræðslu og þjálfun og leitar stöðugt leiða til
að gera enn betur á því sviði.
„Við erum sífellt að skoða hvernig við getum hvatt starfsfólk til að gefa sér tíma í annríki dagsins og sjá virðið í því að efla þekkingu sína og hæfni með markvissri fræðslu og þjálfun.“
Við teljum að innri hvati sé lykillinn að árangri. Reynslan hefur sýnt okkur hversu öflug þessi hvatning getur verið þegar hún kveikir löngun fólks til að læra og þróast í starfi. Okkur langar því að deila reynslu okkar og sögu af því hvernig við höfum unnið með innri hvata til að efla þátttöku í fræðslu og þjálfun.
When Collaboration Isn’t Enough
Flestar skipulagsheildir glíma ekki við það vandamál að fólk vilji ekki vinna saman. Vandinn liggur frekar í því að kerfin, skipulagið og mannauðsferlarnir sem umlykja vinnuna gera árangursríka samhæfingu erfiða.
Á þessum gagnvirka rafræna „masterclass“ mun Jody Hoffer Gittell fjalla um það hvers vegna samhæfing – fremur en samvinna – er oft raunverulega áskorunin. Hún mun jafnframt sýna hvernig mannauðsfólk getur gegnt lykilhlutverki í að skapa þær aðstæður sem þarf til að efla árangur skipulagsheilda.
Snemmtaka lífeyris, hvaða verkfæri hefur HR
Hvað gerist á vinnustaðnum þegar stór hópur lykilstarfsfólks velur snemmtöku lífeyris — og hvernig getur HR breytt því úr áhættu í tækifæri?
Sífellt fleiri skoða snemmtöku lífeyris og hlutastarf sem leið til meiri sveigjanleika. Fyrir vinnustaði getur þetta þýtt bæði tækifæri og áskoranir. Í erindinu rýnum við í hvaða hvatar ýta undir snemmtöku, hvaða áhrif hún getur haft á vinnumarkað og vinnustaði og sýnum hagnýtar leiðir til að byggja upp stefnu og samtal við starfsfólk.
CIPD ráðstefnan – Manchester
CIPD ráðstefnan verður haldin dagana 4.-5. nóvember í Manchester.
Nánari upplýsingar og dagskrá koma fljótlega.
HR FORUM 2026 í Osló
Mannauður ætlar að fara í ráðstefnuferð á HR FORUM 2026 sem haldin verður í Osló 11.-12. nóvember 2026. Þetta er 2 daga ráðstefna sem þeir kalla „Investing in people“. Ráðstefnan verður haldin í NOVA STUDIOS í Lillestrøm. Gist verður á Hotel Scandic Lillestrøm. Verðið fyrir okkur er 17.190 NOK og inniheldur ráðstefnuna, 3 hótelnætur, hádegismat báða dagana og „Mingling partý“ á miðvikudagskvöldið. Hver og einn sér um að greiða og bóka flugið sitt sjálfur.
Línudans stjórnenda- Að finna jafnvægið milli stuðnings, ábyrgðar og heilbrigðra marka.
Í þessu fræðsluerindi verður fjallað um jafnvægið sem einkennir góða stjórnun. Farið verður yfir algengar gildrur, hvort sem stjórnendur taka á sig of mikla eða of litla ábyrgð og hvernig hægt er að byggja upp heilbrigð mörk, efla ábyrgð starfsfólks en jafnframt styðja við það og skapa traust samstarf.
Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi þess að stjórnendur og mannauðsfólk hlúi að eigin vellíðan, setji vinnunni skýr mörk og verði þannig betri fyrirmyndir fyrir starfsfólk sitt.
HR TECH 2027
HR TECH 2027 er 1/2 dagsráðstefna Mannauðs sem fjallar um hvernig sífellt þróaðri tækni er beitt í mannauðsstjórnun og rekstri fyrirtækja með áherslu á nýjustu tækni, kerfi og lausnir sem móta framtíð vinnumarkaðarins. Markmiðið er að veita stjórnendum og fagfólki skýrari innsýn í þær breytingar sem eru þegar farnar að hafa áhrif og þær kröfur sem fyrirtæki standa frammi fyrir í síflellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni.














