Hversu oft eru sömu starfsmannaupplýsingarnar skráðar, yfirfarnar eða leiðréttar á fleiri en einum stað? Flækjan í mannauðs- og launaferlum verður oft ósýnileg með tímanum. Í erindinu skoðum við hvernig má koma auga á hana, einfalda vinnulag, skýra ábyrgð og tryggja að fólk, ferlar, gögn og tækni vinni betur saman.
Þátttakendur fá einfalt sjálfsmat sem hægt er að taka beint inn á næsta teymisfund, auk glæranna að fundi loknum.

