Viðburðir Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi eru vettvangur fyrir fróðleik, fagleg samskipti og ný tækifæri.
JANÚAR 2026
Vinnustofa – Stjórnunarstraumar – áherslur í mannauðsmálum 2026 – staðarfundur hjá Dale Carnegie í Ármúla 11, 3. hæð.
Miðvikudaginn 28. janúar kl. 09:00-10:30.
Stjórnunarstraumar og áherslur í mannauðsmálum eru síbreytilegir enda innra og ytra umhverfi í stöðugri þróun. Á vinnustofunni rýnum við í nýjar hugmyndir, aðferðir og væntingar sem móta hlutverk stjórnenda og mannauðsmála í dag. Mannauðsstjórnun er ekki lengur bara „stoðdeild“ innan fyrirtækja heldur spila mannauðsmálin lykilatriði í stjórnun og ákvarðanatöku fyrirtækja hvað reksturinn varðar. Við skoðum hvað er raunverulega nýtt, hvað er enduruppgötvuð „klassík“ – og hvernig við getum nýtt nýjar hugmyndir til að styrkja bæði árangur og fólkið sem skapar hann.
Smelltu hér til að skrá þig.

Virkari viðverustjórn hjá Reykjavíkurborg
Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis Reykjavíkurborgar
Fimmtudagurinn 29. janúar 2026
Rafrænn fundur kl. 9:00-10:00
Reykjavíkurborg er með viðverustefnu og heilsustefnu sem miða að því að efla heilsu og vellíðan starfsfólks og draga úr veikindafjarvistum. Þótt gögn sýni lækkandi upplifun á álagi í kjölfar styttingar vinnuviku og fleiri aðgerða þá hafa veikindahlutföll verið hærri síðustu þrjú ár en árin þar á undan. Borgin hefur því ákveðið að stíga það viðbótar skref að veita stjórnendum aðgang að sérfræðingum sem verða stjórnendum til halds og trausts í viðverustjórnun, til viðbótar við hefðbundna mannauðsþjónustu.

Gervigreind snýst um fólk, ekki bara tækni.
Fyrirlesarar: Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, framkvæmdastjóri og stofnandi Öldu og Sigyn Jónsdóttir, tæknistjóri og meðstofnandi Öldu.
Þriðjudagurinn, 3. febrúar 2026
Rafrænn fundur kl. 9:15-10:15
Á fundinum ræða Þórey og Sigyn um hlutverk mannauðs, menningar og færni í innleiðingu gervigreindar. Er menning fyrirtækja tilbúin fyrir gervigreind og hvaða þættir skipta mestu fyrir árangursríka innleiðingu?

FEBRÚAR
Rafrænn fundur – Stjórnunarstraumar – áherslur í mannauðsmálum 2026.
Fimmtudaginn 5. febrúar kl. 9:00-10:00.
Stjórnunarstraumar og áherslur í mannauðsmálum eru síbreytilegir enda innra og ytra umhverfi í stöðugri þróun. Á vinnustofunni rýnum við í nýjar hugmyndir, aðferðir og væntingar sem móta hlutverk stjórnenda og mannauðsmála í dag. Mannauðsstjórnun er ekki lengur bara „stoðdeild“ innan fyrirtækja heldur spila mannauðsmálin lykilatriði í stjórnun og ákvarðanatöku fyrirtækja hvað reksturinn varðar. Við skoðum hvað er raunverulega nýtt, hvað er enduruppgötvuð „klassík“ – og hvernig við getum nýtt nýjar hugmyndir til að styrkja bæði árangur og fólkið sem skapar hann.

Hádegisverðarfundur í boði Alfreðs í Hofi á Akureyri í samvinnu við Faghóp Norðurlands
Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 12:00.
Alfreð í samvinnu við Faghóp Mannauðs á Noðrulandi, býður félagsfólki í hádegisverð og spjall þar sem m.a “Hæfnileit Alfreðs” verður kynnt – nýr valkostur í ráðningum. Léttur hádegisverður frá Majó í boði á fundinum.

Jákvæð forysta: Alvöru kenning um stjórnun og menningu sem allir sem bera ábyrgð á uppbyggingu vinnustaða þurfa að þekkja.
Miðvikudagurinn 17. febrúar kl. 09:15-10:15
Fyrirlesari: Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði og stjórnendaþjálfari hjá Þekkingarmiðlun
Rafrænn fundur á TEAMS
Eyþór mun fjalla um kenningu Kim Cameron “Positive Leadership”. Vísindalega studda kenning sem byggir á þeirri nálgun að greina það sem er virkilega að virka.
Hér er komin góð tenging á milli stjórnendaaðferða, samskipta og menningar, ásamt hagnýtum aðferðum eins og að vinna með styrkleika, orðræðuna, orkugjafana og það sem gefur fólki og vinnustöðum tilgang og fær hjartað til að slá hraðar.

Aðalfundur Mannauðs
Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 16:30-17:30
Rafrænn á TEAMS
Fundarstjóri: Hildur Elín Vignir
DAGSKRÁ:
-Skýrsla stjórnar
-Reikningar félagsins
-Árgjald 2026
-Lagabreytingar
-Stjórnarkjöf (1 stjórnarsæti laust)
-Kosning skoðunarmanna
-Umræður um verkefni og áherslur næsta árs
-Önnur mál

MARS
Lífeyrismál fyrir mannauðsfólk – handbókin sem léttir þér lífið –
Fimmtudagurinn 5. mars 2026 kl. 09:15-10:15
Rafrænn fundur á TEAMS
Fyrirlesari: Jenný Ýr Jóhannsdóttir, viðskiptastjóri Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna
Þótt margir hugsi fyrst um lífeyrismál rétt fyrir starfslok, þá eru þau mikilvæg frá upphafi ráðningarsambandsins og á öllum lykiltímamótum starfsævinnar. Sem mannauðsstjóri hefur þú tækifæri til að styðja starfsmenn, veita fræðslu og skapa öryggi án þess að vera sérfræðingur í lífeyrismálum. Í erindinu verður farið yfir hvaða tímamót skipta mestu máli og hvernig þú getur nýtt þína stöðu til að hafa jákvæð áhrif á framtíð starfsmanna.

HR TECH 2026
Þriðjudagurinn 10. mars 2026 í Silfurbergi í Hörpu
Kl. 09:00-13:00.
Aðalfyrirlesarar: Prithwiraj Choudhury og Christine Armstrong
Mannauður heldur nú ráðstefnuna HR TECH í annað sinn á Íslandi. Þar sem framtíðin verður knúinn áfram af sífellt fullkomnari tækni leggur félagið metnað sinn í að bjóða upp á sérstaka ráðstefnu sem fjallar um þá nýjustu tækni, tæki og tól sem fyrirtæki verða að tileinka sér til að verða ekki undir í sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni.
Fundarstjóri: Ketill Berg Magnússon

PÁSKABINGÓ fjölskyldunnar 2026
Fimmtudaginn 19. mars 2026
Kl. 17:30-18:30
Páskabingó fjölskyldunnar er árlegur viðburður, gríðarlega vinsæll þar sem öll fjölskyldan kemur saman og spildar rafrænt bingó saman. Í verðlaun eru glæsileg stór páskaegg.
Öll börn sem taka þátt fá lítið páskaegg fyrir þátttökuna.
APRÍL
VORRÁÐSTEFNA FAGFÉLAGANNA
Miðvikudagurinn 29. apríl 2026 í Kaldalóni í Hörpu.
Kl. 14:00-16:00 og tengslamyndun og kokteilboð eftir ráðstefnuna.
Mannauður, Stjórnvísi og SKÝ (Skýrslutæknifélagið) taka höndum saman þriðja árið í röð og bjóða félagsfólkinu sína upp á sameiginlega ráðstefnu þar sem fjallað verður um þær mikilvægustu áherslur í stjórnun og rekstri sem mikilvægt er að þekkja vel.
Takið daginn frá!
Dagskrá vorráðstefnunnar verður auglýst þegar nær dregur.
LIÐNIR VIÐBURÐIR 2026
Geopolitics Meets HR Leadership
-Leiðtogahlutverk mannauðsfólks í heimi alþjóðastjórnmála-
Fyrirlesari: Lucas van Wees. Fyrrverandi forseti EAPM (Evrópusamtaka mannauðsfólks) og stjórnarmaður í WFPMA (Alþjóðasamtökum mannauðsfólks)
Miðvikudagurinn 21. janúar 2026
Rafrænn fundur kl. 9:15-10:15
Lucas mun fjalla um samspil alþjóðastjórnmála og leiðtogahlutverk mannauðsfólks og hvernig mannauðsstjórnun getur styrkt seiglu skipulagsheilda og samfélagsins í heild sinni í síbreytilegu umhverfi á óvissutímum.

Hormónaheilsa á vinnustaðnum – ósýnilegi áhrifavaldurinn í vinnunni-
Halldóra Skúladóttir
Breytingarskeiðsráðgjafi og sérfræðingur í fræðslustjórnun
Mánudagurinn 19. janúar 2026
Rafrænn fundur kl. 9:15-10:15
Það er margt sem hefur áhrif á vinnudaginn sem ekki sést á yfirborðinu. Hormón móta hvernig við sofum, bregðumst við streitu, tökum ákvarðanir og höldum einbeitingu – án þess að við áttum okkur endilega á því.
Á fundinum fer Halldóra yfir þennan ósýnilega áhrifavald og hvernig hormónabreytingar kvenna og karla, á frjósemisárum og síðar á ævinni, geta haft áhrif á líðan og frammistöðu í starfi.

Heilsuvenjur – hvernig náum við eiginlega að viðhalda þeim?
Gígja Sunneva, ráðgjafi hjá Greenfit með meistaragráðu í heilsusálfræði og stafrænum inngripum.
Miðvikudagurinn 14. janúar 2026
Rafrænn fundur kl. 9:15-10:15
Í fyrirlestrinum mun hún fara yfir heilsuvenjur okkar, ástæður þess að við náum ekki að viðhalda þeim og hvað við getum gert. Gígja fjallar einnig um virkni dópamíns í lífi okkar, stjórnstöðvar heilans og þátt þeirra í mótun hegðunar ásamt mikilvægi sjálfsþekkingar. Hún skilur þátttakendur eftir með hagnýt ráð til þess að styrkja heilsuhegðun, hvort sem það er fyrir okkur sjálf eða aðra í kringum okkur.

LIÐNIR VIÐBURÐIR 2025
Jólagleði Mannauðs á Norðurlandi 2025
Fimmtudaginn 11. desember kl. 17:00-19:00. Haldin á Berjaya Iceland Hotels á Akureyri.
Við ætlum að fagna aðventunni og komu jólanna fyrir Norðan, með því að hittast og eiga skemmtilega stund saman.
Hildur Jóna Bergþórsdóttir frá HumanAtWork kemur norður og verður með áhugaverða reynslusögu sem hún kallar „Að setja súrefnisgrímuna fyrst á sig“, boðið verður upp á léttar veitingar og heppnir gestir fara heim með happdrættisvinning.

Winter Wellbeing Webinar – með Liggy Webb
Þriðjudaginn 4. desember klukkan 14:00.
This 45-minute bite-sized webinar will help you to achieve the following
–Positively embrace and enjoy the winter season
–Boost your immune system to avoid the bugs
–Cultivate helpful habits to beat the blues
–Feel happier, healthier and more energised
–Support other people through the winter season
Fyrirlesari: Liggy Webb
Jólagleði Mannauðs 2025
Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 17:00-19:00 hjá Origo í Borgartúni 37, Reykjavík
Við ætlum að fagna aðventunni og komu jólanna saman með því að hittast og eiga skemmtilega stund saman. Félagar okkar hjá Origo bjóða okkur heim í Borgartúnið til sín í létta drykki og veitingar.

Jólabingó Mannauðs fyrir alla fjölskylduna
Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 17:30-18:30 á TEAMS
Jólabingó félagsins fyrir alla fjölskylduna er orðið ómissandi þáttur í starfsemi félagsins þar sem börnin og öll fjölskyldan tekur þátt í gleðinni. Glæsilegir vinningar verða í boði eins og alltaf og öll börn sem taka þátt fá smá jólaglaðning.
Bingóstjóri: Anna Claessen hjá Happy Studio.
Búið að loka fyrir skráningu í Jólabingóið.

Creating Employee Experiences That Actually Work
20. nóvember 10:00-11:00 GMT
Ready to move beyond the traditional HR playbook and design a truly human-centered organization? Join global HR expert and thought leader Ben Whitter for a practical, hands-on session on the Holistic Employee Experience (HEX), a framework that helps organizations unify their people, purpose, and performance.
This webinar is not about abstract theory or corporate jargon. It is about real strategies that you can apply immediately to create a connected, purpose-driven workplace where people and business thrive. You will discover how top-performing organizations embed trust, truth, and sustainable leadership into every stage of the employee journey, from pre-hire to retire, and why this approach is transforming the future of HR.
Fyrirlesari: Ben Whitter, Author, fournder & CEO, HE Organization

Ferð Mannauðs á ráðstefnuna HR Forum í Oslo í Noregi.
Dagana 12. og 13. nóvember 2025.
HR Forum er ein stærsta ráðstefna Norðmanna sem fjallar um stjórnun og mannauðsmál. Ráðstefnan er ætluð fagfólki sem einbeitir sér að því að knýja fram viðskiptavöxt með faglegri mannauðsstjórnun og forystu. Mannauðssérfræðingar, stjórnendur og aðrir sérfræðingar koma þar saman og ræða mikilvægustu strauma og áskoranir vinnumarkaðsins í dag.
Ráðstefnan er haldin á Scandic Hotel Fornebu í Osló í Noregi.

MEISTARAMÍNÚTUR
„Mannauðsmælingar: Virði fyrir reksturinn eða niðurstöður í skúffu?“
Fimmtudagurinn 6. nóvember 2025 kl. 9:15-10:00 – rafrænn fundur á TEAMS
Þetta erindi byggir á meistararitgerð sem unnin var árið 2024 þar sem tekin voru viðtöl við tíu íslensk fyrirtæki. Markmiðið var að varpa ljósi á hvort og hvernig mannauðsmælingar væru framkvæmdar og ekki síður, hvernig niðurstöður þeirra væru nýttar í raun. Er mælt markvisst með tilliti til ákvarðanatöku og inngripa? Eru niðurstöður metnar á rekstrarlegum forsendum eða renna þær ofan í skúffu? Niðurstöðurnar gefa innsýn í hvernig íslensk fyrirtæki nálgast mannauðsmál sem rekstrarmál og hvernig gögn geta orðið að stefnumótandi afli.
Fyrirlesari: Fanney Þórisdóttir, fræðslustjóri Bláa lónsins og nýútskrifaður meistaranemi

The Age of Self-Managed Organizations: What if organizations could operate without bosses – and still thrive?
Doug will share insights on how self-management challenges traditional leadership and HR models and what it means for the future of work.
Þriðjudaginn 4. nóvember 2025 kl. 9:00-10:00 CET á TEAMS.
Fyrirlesari: Doug Kirkpatrick, author, Forbes speaker, and member of the original Morning Star startup team, one of the world’s most cited examples of a self-managed organization.

RAGGA NAGLI og heimsókn í SKY LAGOON
-Maður er manns gaman-
Heilsuógn einmannaleikans!
Mánudagurinn 3. nóvember 2025 kl. 8:00-9:00 og boðið í SKY LAGOON eftir fundinn.
Ragga mun á sinn skemmtilega og fræðandi hátt fjalla einmannaleika, einmannaleikafaraldurinn og áhrif hans á heilsuna.
Fyrirlesari: Ragga Nagli (Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur)

Sterkari leiðtogi með ACT-ÞERAPÍU!
Þriðjudaginn 28. október kl. 9:15-10:15 – rafrænn fundur á TEAMS
Á fundinum fjallar Hildur um mikilvægi þess að mannauðsstjórar hugi að eigin velferð og heilsu og kynnir til sögunnar ACT-ÞERAPÍU sem verkfæri til að draga út streitu, byggja upp seiglu og minnka líkur á kulnun.
Fyrirlesari: Hildur J. Gísladóttir, vinnusálfræðingur og MSc. Behavioural and Organization Psychology

Hvað er Evidence-based HR?
Hvernig getum við nýtt okkur það?
Föstudagurinn 17. október kl. 13:00-14:00 á TEAMS.
Á fundinum kynnir Hildur Jóna aðferðafræði sem byggir á gögnum, rannsóknum og kerfisbundinni nálgun í mannauðsstjórnun, með það að markmiði að styðja við upplýsta og áhrifaríka ákvarðanatöku í mannauðsmálum.
Fyrirlesari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur og eigandi HumanAtWork.
Fundarhlekkurinn er á FB síðu Mannauðs.

Kulnun Íslendinga á vinnumarkaði
Miðvikudagurinn 15. október 2025 kl. 8:30-9:15 – rafrænn fundur á TEAMS
Frá árinu 2020 hefur Prósent unnið að því að varpa ljósi á kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði. Með notkun 16 spurninga úr Maslach kulnunarmódelinu (The Maslach Burnout Inventory, MBI) hefur verið unnið að því að greina þetta flókna fyrirbæri. MBI er fyrsta vísindalega þróaða mælikvarðinn fyrir kulnun og er notaður víða um heim. Rannsóknin mælir þrjár mikilvægar víddir: tilfinningalega örmögnun, tortryggni og afköst í starfi.
Á fundinum mun Trausti fjalla um niðurstöður rannsóknanna og stöðuna.
Fyrirlesari: Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents
Það þarf að skrá sig fyrir klukkan 20, þriðjudaginn 14. október til að fá fjarfundarboðið í gegnum TEAMS
Forstjórahringekjan
Miðvikudagurinn 8.október kl. 9:15-10:15 – rafrænn fundur á TEAMS
Á fundinum mun Ásta Dís Óladóttir fjalla um niðurstöður rannsóknar sem sýna að stjórnendaleitarráðgjafar gegna lykilhlutverki í ráðningarferli forstjóra og hafa veruleg áhrif á það hverjir komast að í ferlinu og hverjir ekki og hversu stórt hlutverk það spili að forstjórastöður séu ekki auglýstar opinberlega. Ásta Dís mun sýna fram á að „leitaraðferðir byggjast oft á óformlegum tengslanetum og hefðbundnum viðmiðum sem viðhalda ríkjandi mynstri, þar sem karlar eru líklegri til að hljóta forstjórastöður og kynjajafnvægi er sjaldnast sett í forgang.“
Fyrirlesari: Ásta Dís Óladóttir, prófessor og stofnandi Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands

MANNAUÐSDAGURINN 2025
„Drifkraftur breytinga liggur í mannauði fyrirtækjanna“.
Ein stærsta ráðstefna mannauðsmála og stjórnunar á Íslandi.
Föstudagurinn 3. október 2025 frá 9:00-17:00 í Hörpu.
Á Mannauðsdeginum í ár verður fjallað um mörg af mikilvægustu verkefnum mannauðsfólks og stjórnenda fyrirtækja. Mannauðsdagurinn er vettvangur fagfólks úr hinum mismunandi atvinnugreinum sem kemur saman til að fræðast um þær helstu áskoranir og þau tækifæri sem fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. Með því að búa til þennan vettvang og sameina þennan mikilvæga og fjölbreytta hóp mannauðsfólks, mannauðsráðgjafa og áhugafólks um mannauðsmál umbreytum við fræðunum í framkvæmd og fáum tækifæri til að læra um nýjustu tækni, nýjustu rannsóknir, nýjustu aðferðir, tæki og tól ásamt því að mynda ný tengsl og styrkja eldri sambönd.
Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti viðburður stjórnunar og mannauðsmála hér á landi og hann sækja vel fyrir 1.200 ráðstefnugestir. Samhliða ráðstefnunni munu um 140 fyrirtæki sýna vörur sínar og þjónustu á glæsilegri sýningu.


Happy Hour á SKÝ BAR á Center Hóteli Arnarhvoll
Hitum upp fyrir Mannauðsdaginn
Fimmtudaginn 2. október 2025 kl. 17:00-19:00 í boði Alfreðs
Öllu ráðstefnugestum Mannauðsdagsins 2025 er boðið og sérstaklega þeim gestum sem þurfa að fljúga eða aka utan að landi deginum áður til Reykjavíkur auk alls félagsfólks Mannauðs.
Léttar veitingar, drykkir og ljúfir tónar í boði.

Kaffispjall Faghóps um mannauðsmál hjá ríkinu
Staður: Te&Kaffi í Borgartúni
Föstudagurinn 26. september kl. 8:30-9:30
Bara mæta – þarf ekki að skrá sig

Uppskrift að góðri geðheilsu
Miðvikudagurinn 24. september 2025 kl. 13:00-13:30 – rafrænn örfundur
Mannauður og Mental bjóða upp á opið erindi um hvernig við hlúum að eigin andlegri heilsu, í tilfefni af gulum september.
Góð geðheilsa er ekki sjálfgefin heldur eitthvað sem við þurfum að hlúa að í daglegu lífi. Líkt og líkamleg heilsa byggir á mörgum þáttum þá er andleg líðan samspil margra þátta sem styrkja okkur þegar á reynir.
Á þessu erindi förum við í gegnum lykilþætti sem hafa mest áhrif á geðheilsu okkar og hvernig við getum skapað eigin „uppskrift“ sem hentar hverjum og einum. Við skoðum hvað hjálpar okkur að ná jafnvægi í amstri dagsins, hvernig við getum byggt upp seiglu og hvaða litlu venjur skipta sköpum til lengri tíma.
Þetta erindi er fyrir alla sem vilja öðlast dýpri skilning á eigin geðheilsu og fá hagnýta leið til að byggja upp styrkleika og vellíðan í lífi og starfi.
Fyrirlesarar: Helena Jónsdóttir, klínískur sálfræðingur og ráðgjafi og Hilja Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá Mental ráðgjöf


From Zero to Hero – How to Use AI in Your HR Work
Miðvikudagurinn 24. september 2025 kl. 8:00-9:30 – rafrænn fundur á vegum EAPM
Ready to move beyond the AI buzz and start using practical, real-world tools in your HR work?
Join Professor and AI consultant Claus Nygaard for a hands-on, no-nonsense session that will change how you approach artificial intelligence in your daily work. This webinar isn’t about tech jargon or abstract theory – it’s about what works right now, even if you don’t have a technical background.
You’ll explore how to make AI your trusted partner in everything from recruitment and development to communication and admin tasks. With real-life demonstrations and guidance, you’ll leave with the insight and confidence to start applying AI tools in your own work.
Fyrirlesari: Claus Nygaard, Professor, PhD, CEO & Strategic AI Advisor

3 Shifts to Elevate Your Impact as an HR Professional in 2025
Föstudagurinn 19. september 2025 kl. 7:30-8:30 – rafrænn fundur í boði HR Norge.
Væntingar til mannauðsstjóra aukast stöðugt. Þeir sem ná árangri sameina stefnumótandi innsýn með hagnýtum aðgerðum sem styrkja bæði starfsmenn og rekstur. Bo Vialle-Derksen, sem einnig kemur fram á HR Forum 2025 ráðstefnunni í Osló, mun í þessum rafræna fundi deila þremur mikilvægum atriðum sem geta hjálpað þér sem mannauðsstjóra að leiða með meiri árangri.
Fyrirlesari: Bo Vialle-Derksen, stofnandi SyngularEdge, aðjúkt í mannauðsstefnu- og leiðtogafræðum við IE Business School og Nyenrode Business University. Meðhöfundur bókarinnar „The Best Version of Me: Boosting Your Well-Being“.

Betri svefn – betri vinnustaður.
Svefn bætir líðan, eykur afköst og dregur úr fjarvistum.
Þriðjudagurinn 16. september 2025 kl. 9:15-10:15 – rafrænn fundur
Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og einn helsti svefnsérfræðingur Íslands mun á fundinum fjalla almennt um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan og árangur í starfi. Erla mun fara yfir helstu svefnvandamál sem starfsmenn glíma við, hvaða áhrif þau hafa á fyrirtæki og einstaklinga og sýnir fram á hagnýtar leiðir til úrbóta.
Fyrirlesari: Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í svefni

Gervigreind fyrir vinnustaði
Fimmtudagurinn 11. september 2025 kl. 9:15-10:15 – rafrænn fundur
Kristján F. Kristjánsson er einn af okkar reyndustu félögum hvað gervigreind varðar. Ævistarfið hans snýst í dag að hluta um gervigreind og notkun hennar í rekstri fyrirtækja. Kristján er einnig orðinn vel þekktur erlendis sem fyrirlesari, tekur þátt í fjölmörgum ráðstefnum og sýningum og er einstaklega vel tengdur í faginu. Á fundinum mun Kristján fjalla um hverning fyrirtæki geta notað gervigreind á mannamáli.
Hann mun m.a. fjalla um:
-Hvaða þjónustur eru í boði?
-Hvernig er best að byrja?
-Hvað ber að varast?
-Hver er ávinningur af því að nýta gervigreind?
Fyrirlesari: Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills og sérfræðingur í gervigreind

Sálræn fyrsta hjálp
Miðvikudagurinn 10. september 2025 kl. 13:00-13:20 – rafrænn örfundur
Mannauður og Mental vilja bjóða upp á opið erindi í tilefni af Gulum september fyrir öll sem vilja læra meira um sálrænu fyrstu hjálp.
Við getum öll lent í aðstæðum þar sem einhver í kringum okkur sýnir merki um vanlíðan, streitu eða áfall. Þá getur verið erfitt að vita hvað við eigum að gera eða segja og ótti við að gera mistök veldur því að margir segja ekki neitt.
Sálræn fyrsta hjálp er hagnýt nálgun sem kennir okkur einföld og áhrifarík viðbrögð þegar einstaklingar eru að ströggla. Hún snýst ekki um að vera sálfræðingur eða leysa vandann heldur um að vera til staðar hlusta og styðja.
Á þessu örerindi lærir þú hvað sálræn fyrsta hjálp felur í sér og af hverju hún skiptir máli. Þú færð innsýn í hvernig við getum nálgast samtal á öruggan og mannlegan hátt og hagnýt skref sem hver og einn getur tekið til að veita stuðning í raunverulegum aðstæðum.
Þetta erindi er fyrir alla sem vilja öðlast aukið öryggi í samskiptum þegar kemur að viðkvæmum aðstæðum og taka þátt í að skapa vinnuumhverfi þar sem fólk finnur fyrir stuðningi og öryggi.
Fyrirlesarar: Helena Jónsdóttir, klínískur sálfræðingur og ráðgjafi og Hilja Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi frá Mental ráðgjöf


