Handbókin sem léttir þér lífið: Lífeyrismál fyrir mannauðsfólk

Þótt margir hugsi fyrst um lífeyrismál rétt fyrir starfslok, þá eru þau mikilvæg frá upphafi ráðningarsambandsins og á öllum lykiltímamótum starfsævinnar. Sem mannauðsstjóri hefur þú tækifæri til að styðja starfsmenn, veita fræðslu og skapa öryggi án þess að vera sérfræðingur í lífeyrismálum. Í erindinu verður farið yfir hvaða tímamót skipta mestu máli og hvernig þú getur nýtt þína stöðu til að hafa jákvæð áhrif á framtíð starfsmanna.

Fyrirlesari: Jenný Ýr Jóhannsdóttir, viðskiptastjóri
5. mars kl. 9:15-10:15 – rafrænn fundur á TEAMS