Rafrænn fundur þar sem kynnt verða nýjustu áherslur í mannauðsstjórnun 2026.
Stjórnunarstraumar og áherslur í mannauðsmálum eru síbreytilegir – en kjarni góðrar forystu stendur stöðugur. Á fundinum rýnum við í nýjar hugmyndir, aðferðir og væntingar sem móta hlutverk stjórnenda og mannauðsmála í dag. Mannauðsstjórnun er ekki lengur bara „stoðdeild“ innan fyrirtækja heldur spila mannauðsmálin lykilatriði í stjórnun og ákvarðanatöku fyrirtækja hvað reksturinn varðar. Við skoðum hvað er raunverulega nýtt, hvað er enduruppgötvuð „klassík“ – og hvernig við getum nýtt þetta til að styrkja bæði árangur og fólkið sem skapar hann.
