HR TECH 2027 – 9. mars 2027
HR TECH 2027 – Handan hins óljósa!
9. mars 2027 | Kl. 9:00–13:00 | Silfurberg, Harpa
Ný tækni – ný hugsun og ný tækifæri
Á HR TECH 2027 skyggnumst við inn í framtíðina, kynnumst nýjustu straumum og stefnum í tækni og gervigreind og heyrum áhugaverðar reynslusögur af innleiðingu og nýtingu tæknilausna.
Ráðstefnan er vettvangur fyrir nýjar hugmyndir, þekkingarmiðlun, nýsköpun og öflugt tengslanet stjórnenda, mannauðsfólks og tæknisérfræðinga.
Framtíðin snýst ekki eingöngu um hvað tæknin getur gert – heldur hvað við getum gert með henni.
Við bjóðum upp á framsýna fyrirlesara, áhugaverðar reynslusögur og nýjar hugmyndir sem nýtast á vinnustöðum framtíðarinnar.
Settu daginn í dagatalið hjá þér!
Fyrirlesarar HR TECH 2027

Eirik Norman Hansen
Sérfræðingur í tækni og stafrænni þróun og framtíð atvinnulífsins.
Beyond the Obvious
Horfum lengra en hið augljósa!
Aldrei áður hafa okkur staðið til boða jafn mörg tækifæri og einmitt nú. En hvaða áhrif hefur tækniþróunin á okkur sem einstaklinga, á fyrirtækin okkar og samfélagið sem við búum í?
Við stöndum mitt í byltingu þar sem breytingar verða á sífellt meiri hraða og móta framtíð okkar.
Í þessum fyrirlestri rýnir Eirik í þær breytingar sem nú eiga sér stað, hvað þær þýða fyrir okkur og hvert við stefnum.
Um Eirik Normann Hansen:
Eirik Norman Hansen er framtíðarfræðingur og sérfræðingur í nýjum straumum og stefnum. Hann er þekktur fyrir lifandi og áhugaverða fyrirlestra um þær breytingar sem móta fyrirtæki framtíðarinnar. Hann hjálpar stjórnendum og fyrirtækjum að skilja hvernig þróun í tækni, á mörkuðum og í samfélaginu getur haft áhrif á viðskiptavini, starfsfólk og rekstur fyrirtækja.
Hvaða væntingar munu viðskiptavinir gera í framtíðinni? Hvernig munu störf, ábyrgð og hæfnikröfur þróast? Hvaða þjónusta verður verðmætari? Hvar munu nýir samkeppnisaðilar og viðskiptalíkön líta dagsins ljós? Og hvaða stefnumótandi ákvarðanir ættu fyrirtæki að byrja að huga að strax í dag?
Eirik hefur einstakt lag á að útskýra á skýran og aðgengilegan hátt hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á stefnumótun, vinnuferla, hæfni starfsfólks, þjónustu og viðskiptalíkön. Þátttakendur öðlast betri skilning á því hvað breytingarnar geta þýtt fyrir þeirra eigin fyrirtæki og hvaða málefnum þeir ættu að gefa gaum, ræða og skoða nánar.
Með menntun á sviði viðskipta- og hagfræði, meistaragráðu í tæknistjórnun og yfir 20 ára reynslu af stjórnunarstörfum sameinar Eirik víðtæka viðskiptaþekkingu og djúpan skilning á tækni, fólki og samfélagsþróun.
Eirik er stofnandi Future Sense Institute, kennir við Kristiania-háskólann í Noregi og er einn höfunda bókarinnar When Law Meets AI (Þegar lögfræði mætir gervigreind). Hann heldur fyrirlestra, leiðir hagnýtar vinnustofur og býður upp á umfangsmeiri Future Sense-þróunarverkefni fyrir fyrirtæki sem vilja greina og undirbúa sig fyrir framtíðarbreytingar í sinni atvinnugrein.
Eirik Norman Hansen er sérfræðingur í tækni, stafrænni þróun og framtíð atvinnulífsins. Hann fjallar á lifandi og aðgengilegan hátt um gervigreind, tæknibreytingar og áhrif þeirra á fólk, fyrirtæki og samfélagið.
Hann hefur yfir 20 ára reynslu af stjórnun, ráðgjöf og viðskiptaþróun, er með meistaragráðu í tæknistjórnun og er einn af stofnendum Future Sense Institute.
Eirik er einn eftirsóttasti fyrirlesari Noregs og var valinn fyrirlesari ársins í Noregi árið 2018. Hann er þekktur fyrir kraftmikla, skemmtilega og hvetjandi fyrirlestra þar sem hann sameinar faglega þekkingu, húmor og einstaka hæfileika til að gera flókin viðfangsefni einföld og aðgengileg.
Hann hvetur okkur til að horfa út fyrir hið augljósa, sjá tækifærin í tæknibreytingum og takast á við framtíðina af forvitni og hugrekki.
—————————————————————————————————————————————————————–
Beyond the obvious
Never before have we had as many opportunities as we do right now. But what does technological progress mean for us as individuals, for our organisations and for the society we live in?
We are in the midst of an exponential revolution that is shaping the future we are heading towards. In this keynote, we will explore what is happening, what it means for us and where we are going.
Bio:
Eirik Norman Hansen is a futurist and trend observer, recognised for his engaging keynotes on the changes shaping the businesses of tomorrow. He helps leaders and organisations understand how developments in technology, markets and society may impact their customers, employees and business.
What will customers expect in the future? How will roles, responsibilities and skills requirements evolve? Which services will become more valuable? Where might new competitors and business models emerge? And what strategic choices should organisations start exploring today?
Eirik makes the potential implications for strategy, workflows, skills, services and business models tangible and easy to understand. Participants gain a clearer picture of what these changes could mean for their own organisations and what they should pay attention to, discuss or explore further.
With an academic background in business and economics, a Master’s degree in Technology Management and more than 20 years of leadership experience, he combines solid business expertise with a keen understanding of technology, people and societal developments.
Eirik is the founder of the Future Sense Institute, teaches at Kristiania University College and is an author of *When Law Meets AI* («Når juss møter AI»). He offers keynote presentations, hands-on workshops and more comprehensive Future Sense programmes for organisations looking to explore and prepare for future developments within their own industries.
























































