Dagur: 24. nóvember 2022
Tími: 9:00-10:00
Staður: Húsnæði Landlæknis í Katrínartúni 2, 6. hæð
Fjallað verður um Heilsueflandi vinnustaði, hugmyndafræðina þar að baki, gátlista og hvernig vinnustaðir geta nýtt sér verkfæri Heilsueflandi vinnustaða. Sérstaklega verður fjallað um viðbragðsáætlun fyrir vinnustaði vegna skyndilegs andláts samstarfsfélaga eða ástvinar samstarfsfélaga.
Inga Berg Gísladóttir hjá Landlæknisembættinu og Þórgunnur Hjaltadóttir taka á móti hópnum.