Vinnustofa – Stjórnunarstraumar

Vinnustofa – Stjórnunarstraumar – áherslur í mannauðsmálum 2026 – staðarfundur hjá Dale Carnegie í Ármúla 11, 3. hæð.

Miðvikudaginn 28. janúar kl. 09:00-10:30. 

Stjórnunarstraumar og áherslur í mannauðsmálum eru síbreytilegir enda innra og ytra umhverfi í stöðugri þróun. Á vinnustofunni rýnum við í nýjar hugmyndir, aðferðir og væntingar sem móta hlutverk stjórnenda og mannauðsmála í dag.  Mannauðsstjórnun er ekki lengur bara „stoðdeild“ innan fyrirtækja heldur spila mannauðsmálin lykilatriði í stjórnun og ákvarðanatöku fyrirtækja hvað reksturinn varðar.   Við skoðum hvað er raunverulega nýtt, hvað er enduruppgötvuð „klassík“ – og hvernig við getum nýtt nýjar hugmyndir til að styrkja bæði árangur og fólkið sem skapar hann.