Verum viðbúin – líka hugarfarslega!

Verum viðbúin – líka hugarfarslega
Ókeypis 45 mínútna vinnustofa á Teams mánudaginn 30. nóv. kl. 20.00 til 20.45

Við getum undirbúið okkur fyrir alvarlega atburði með því að safna vatni, matvælum, rafhlöðum og öðrum nauðsynjum. En erum við sjálf tilbúin þegar á reynir?
Í tengslum við átak Almannavarna, Verum viðbúin, býður Dale Carnegie og Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi landsmönnum á ókeypis vinnustofu á netinu þar sem við beinum sjónum að mannlega þættinum í viðbúnaði. Hvernig höldum við ró þegar óvissa ríkir? Hvernig sýnum við seiglu, tökum frumkvæði og styðjum fólkið í kringum okkur þegar á reynir?

Á vinnustofunni kynnum við einfaldar og hagnýtar aðferðir sem hjálpa okkur að takast betur á við óvæntar og krefjandi aðstæður, hvort sem er í daglegu lífi eða þegar alvarlegir atburðir verða. Við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist í kringum okkur, en við getum styrkt hæfni okkar til að takast á við það.

Hvenær: Mánudaginn 30. nóvember kl. 20:00 til 20:45
Hvar: Microsoft Teams
Fyrir hverja: Opið öllum
Verð: Ókeypis

Skráning hér – www.dale.is/bokanir