Fræðslunefnd Mannauðs er elsti faghópur félagsins en hópurinn var formlega stofnaður árið 2017. Hópurinn byggir á grunni hóps sem fræðslustjórra og sérfræðingar í fræðslumálum hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum settu á stofn árið 2012.
Fræðslunefndin gætir hagsmuna þessa hóps og stendur reglulega fyrir erindum eða málsstofum um málefni sem snúa að fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum í samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins.
Í fræðslunefnd Mannauðs eru sex félagsmenn með fjölbreytta reynslu af fræðslumálum. Hlutverk nefndarinnar er að skapa fræðsluvettvang fyrir félagsmenn, sinna ýmsum fræðslutengdum málum fyrir hönd félagsins og stuðla að aukinni þekkingu félagsmanna á þeim málefnum og áskorunum sem hæst ber í störfum þeirra hverju sinni. Til að sinna því hlutverki kemur nefndin að ýmsum fræðsluverkefnum fyrir hönd félagsins og gerir einnig reglulega skoðanakönnun meðal félagsmanna á því hvaða málefni og áskoranir brenna á þeim. Nefndin setur í framhaldi upp dagskrá með þeim málefnum og áskorunum sem brenna á félagsmönnum og fær sérfræðinga til að vera með erindi með því sem hæst ber. Nefndin vinnur í nánu sambandi við framkvæmdastjóra félagsins.
Nefndina skipa:
Guðmundur Arnar Guðmundsson, formaður. Netfang: gudmundur@akademias.is
Ásta Björk Jökulsdóttir. Netfang: asta@fagkaup.is
Fjóla Hauksdóttir. Netfang: fjola@idan.is
Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir. Netfang: Johanna.Laufdal.Fridriksdottir@olgerdin.is
Ólafur Finnbogason. Netfang: olafurf@postur.is
Sigurbjörg Magnúsdóttir: Netfang: sigurbjorg@dominos.is
Stjórn
Akademias
Fagkaup
IÐAN, fræðslusetur
Ölgerðin
Pósturinn
Travel Connect
Faghópur tölfræðigagna
Tölfræðinefnd félagsins er faghópur sem annast framkvæmd árlegrar tölfræðikönnunar sem félagið hefur framkvæmt frá árinu 2019. Nefndin heldur utan um framkvæmd könnunarinnar, gerð spurningalista og eftirfylgni með henni.
Faghópur um tölfræði er leiðandi í því að skapa virði fyrir félagsfólk með því að afla ýmissa tölfræðigagna um mannauðs- og launamál sem fyrirtæki og stofnanir geta notað í samanburði við sína eigin tölfræði.
Hópinn skipa:
Víðir Ragnarsson, formaður, PayAnalytics
Adriana K. Pétursdóttir, Rio Tinto
Birkir Svan Ólafsson, Arion banki
Brynjar Már Byrjólfsson, Isavia
Herdís Pála Pálsdóttir, Páfugl
Stjórn
Rio Tinto
Árborg
Vörður
Origo
Páfugl
Gallup
Faghópur Mannauðs á Norðurlandi
Faghópur félagsfólks Mannauðs á Norðurlandi.
Faghópurinn var stofnaður 6. 11.2023 og er markmið og hlutverk hópsins að halda utan um félagsfólk á Norðurlandi og nágrenni og skapa virði fyrir félaga sem starfa við mannauðsmál á svæðinu.
Faghópurinn er vettvangur til að bera saman bækur sínar, deila ráðum og þekkingu og velta upp spurningum og vangaveltum um mannauðsmál og stjórnun mannauðsmála.
Hópurinn mun standa fyrir viðburðum og erindum um málefni sem tengjast mannauðsstjórnun á svæðinu.
Stjórn
Advania
TDF Foil Iceland ehf
Norðurorka
Sjúkrahúsið á Akureyri
UNAK.
Faghópur launa
Faghópur launa er vettvangur fyrir fólk sem starfar við launavinnslu, launagreiningar eða annað áhugafólk um laun.
Hér getum við rætt saman um launavinnslu, umbætur, sjálfvirknivæðingu launa, kerfi sem styðja okkur í launavinnslu, útfærslur á kjarasamningum, ferli við nýráðningar, launabreytingar, uppgjör, ofl. Hér er frábær vettvangur fyrir fólk til að bera saman bækur, fá ráð og velta upp spurningum og vangaveltum.
Faghópur launa var stofnaður árið 2021 og er markmiðið með honum að skapa virði fyrir þá félagsmenn sem stýra eða sinna launavinnslu og tengdum verkefnum. Hópurinn er myndaður svo það félagsfólk sem sinnir launavinnslu geti miðlað reynslu og þekkingu sín á milli.
Hópurinn stendur fyrir reglulegum viðburðum og erindum um málefni sem tengjast vinnslu launa og tengdum málum.
Stjórn
Advania
Advania
Efla
Íslandsbanki
Faghópur minni fyrirtækja
Rekstur minni fyrirtækja er töluvert frábrugðinn rekstri stærri fyrirtækja og stofnana. Þess vegna var ákveðið að stofna faghóp fyrir þá félaga sem starfa hjá minni fyrirtækjum upp á sá hópur gæti speglað sig og félagið skipulagt fræðslu og fundi fyrir þann hóp.
Stjórn
Víðsýni
Vinnuvernd
Set ehf
Faghópur um ráðningar
Ráðningar eru og hafa alltaf verið gríðarlega mikilvægar og það skiptir sköpum að vel takist til. Í kjölfar COVID hafa þær gjörbreyst , bæði verklagið sem og sá hópur sem sækir um.
Stjórn
Intellecta
Ráðhús Reykjavíkur
Askja - Bílaumboð
Öryggismiðstöðin
GEKO
LS Retail
Bláa Lónið
Faghópur um mannauðsmál sveitarfélaga
Um rekstur sveitarfélaga gilda oft aðrar reglur og önnur lögmál en fyrirtækja í einkarekstri. Mikilvægt er að hafa þessa sérstöðu í huga og bjóða upp á fræðslu og tengja starfsfólk saman sem starfar í þessum geira atvinnulífsins.
Stjórn
Akraneskaupstað
Sveitarfélagið Árborg
Kópavogsbær
Kennarasamband Íslands
Faghópur um mannauðsmál ríkisins
Um rekstur opinberra stofnana gilda oft aðrar reglur og önnur lögmál en fyrirtækja í einkarekstri. Mikilvægt er að hafa þessa sérstöðu í huga og bjóða upp á fræðslu og tengja starfsfólk saman sem starfar í þessum geira atvinnulífsins.
Stjórn
Umhverfisstofnun
Hafrannsóknarstofnun
Útlendingastofnun
Veðurstofan
Starfsmennt
Tryggingastofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
Faghópur um Alþjóðlega Mannauðsdaginn á Íslandi
Alþjóðlegi Mannauðsdagurinn er haldinn hátíðlegur 20. maí ár hvert út um allan heim. Það er EAPM – Evrópusamtök mannauðsfólks sem stýrir því starfi en Mannauður er hluti af þeim samtökum.
Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi fagsins, mannauðsfólksins og mannauðsins sjálfs.
Stjórn
Framkvæmdastjóri og stofandi Dale Carnegie á Íslandi
Ráðgjafi hjá Attentus
Mannauðssérfræðingur hjá Samkaupum
Faghópur um fjölbreytileika og inngildingu
Fjölbreytileiki á vinnumarkaði er mjög mikilvægur og gerir atvinulífið betur í stakk búið til að takast á fjölbreyttar áskoranir.
Fjölbreytileiki á vinnumarkað telur alla þátttakendur vinnumarkaðsins í heild sinni. Kyn, uppruna, kynþætti, aldur, fötlun og skerta starfsgetu.
Stjórn
Ráðgjafi hjá Attentus
Faghópur háskólasamstarfs
Faghópur háskólasamstarfs var stofnaður árið 2021. Tilgangur hópsins er að efla tengsl félagsins við háskólasamfélagið á Íslandi en ein af stefnuáherslum félagsins er að leggja metnað í samstarf við fagstéttina hérlendis og erlendis, háskólasamfélagið sem og atvinnulífið.
Stjórn
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn í Reykjavík
Landbúnaðarháskólinn
Háskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Faghópur um mannauðsmál fyrirtækja á einkamarkaði
Faghópur um mannauðsmál fyrirtækja á einkamarkaði hefur þann tilgang að tengja saman starfsfólks sem starfar í þessum geira atvinnulífsins og bjóða upp á fræðslu sem hentar þeim best.
Stjórn
Míla
Innes
GEKO
Míla
Tektonik
Siðanefnd
Siðanefnd er ætlað að halda utan um siðareglur félagsins og fjalla um þau mál sem upp koma og varða reglurnar.