Skip to main content

Dagur: 19. janúar 2024

Tími: 12:30 – 13:30

Staður: Borgartún 23, 3ja hæð hjá Akademias

Tækifærin á Linkedin fyrir fyrirtæki og mannauðsfólk.

Starfstengdi samfélagsmiðillinn Linkedin er einn mest vaxandi samfélagsmiðill landsins.
Linkedin spilar stöðugt stærra hlutverk í tengslamyndun og atvinnuleit einstaklinga en ekki síður sem miðill fyrir stjórnendur og fyrirtæki til að miðla upplýsingum og markaðssetja sig gagnvart t.d. haghöfum og framtíðar starfsmönnum.

Steinar Þór Ólafsson, eða „Steinar á Linkedin“ eins og sumir hafa kosið að kalla hann, hefur nýtt miðilinn í sína þágu á undanförnum árum en sömuleiðis aðstoðað fjölda fyrirtækja og stjórnendur að koma auga á og nýta sér tækifærin á Linkedin.

Á þessu námskeiði mun hann fara yfir það sem kalla mætti „playbook“ um hvernig einstaklingar og fyrirtæki geta nálgast miðlun á Linkedin til þess að fá sem mest út úr því sér í hag.

Námskeiðið er 60 mínútur þar sem farið er í upphafi yfir landslag samfélagsmiðla og hagkerfi athyglinnar.

Í framhaldi af því er farið yfir praktísk atriði tengt Linkedin og að lokum miðlar Steinar af reynslu sinni hvernig efni best er að setja inn á miðilinn og leiðir til þess að geta sinnt honum án mikillar fyrirhafnar.

Skráning á viðburð

Ljósmyndir eru teknar á viðburðum félagsins og einnig mæta fjölmiðlar stundum á staðinn. Gestir geta því átt von á að teknar séu myndir af þeim og birtar í tengslum við viðburði Mannauðs.