Liðnir viðburðir

Geopolitics Meets HR Leadership

21. janúar 2026

Fyrirlestur um hvernig alþjóðastjórnmál hafa áhrif á leiðtogahlutverk mannauðsfólks og hlutverk mannauðsstjórnunar í að efla seiglu skipulagsheilda á óvissutímum. Lucas van Wees, fyrrverandi forseti EAPM og stjórnarmaður í WFPMA, fjallar um áskoranir og tækifæri mannauðsstjórnunar í síbreytilegu alþjóðlegu samhengi. Rafrænn fundur 21. janúar 2026 kl. 9:15-10:15.

Hormónaheilsa á vinnustaðnum

19. janúar 2026

Það er margt sem hefur áhrif á vinnudaginn sem ekki sést á yfirborðinu. Hormón móta hvernig við sofum, bregðumst við streitu, tökum ákvarðanir og höldum einbeitingu – án þess að við áttum okkur endilega á því. Á fundinum fer Halldóra yfir þennan ósýnilega áhrifavald og hvernig hormónabreytingar kvenna og karla, á frjósemisárum og síðar á ævinni, geta haft áhrif á líðan og frammistöðu í starfi.

Heilsuvenjur – Gígja Sunneva

14. janúar 2026

Gígja Sunneva er með meistaragráðu í heilsusálfræði með stafrænum inngripum. Í fyrirlestrinum mun hún fara yfir heilsuvenjur okkar, ástæður þess að við náum ekki að viðhalda þeim og hvað við getum gert. Gígja fjallar einnig um virkni dópamíns í lífi okkar, stjórnstöðvar heilans og þátt þeirra í mótun hegðunar ásamt mikilvægi sjálfsþekkingar. Hún skilur þátttakendur eftir með hagnýt ráð til þess að styrkja heilsuhegðun, hvort sem það er fyrir okkur sjálf eða aðra í kringum okkur.