Dagur: 17. september 2024
Tími: 9.15-10:15
Rafrænn fundur á TEAMS
Vinnumarkaðurinn hefur gengið í gegnum gríðarlegar breytingar á síðustu árum og hafa sprottið upp lausnir til leysa vandamál sem fylgja aukinnar fjarvinnu fólks, þá sérstaklega þegar kemur að fjarvinnu erlendis.
Sérfræðingar eru af skornum skammti á Íslandi og leita fyrirtæki nú í sífellt meiri mæli út fyrir landsteinana til að finna sérfræðinga t.d. forritara, sölufólk og gagnafræðinga. Þegar kemur að uppsetningu á þessum starfsmönnum skapast oft mikill hausverkur varðandi hvaða leið sé best að fara til að greiða þeim laun.
Á fundinum mun Davíð Rafn Kristjánsson fara í gegnum áskoranir og tækifæri sem felast í fjarvinnu á milli landa, EoR leiðina og framtíð vinnumarkaðarins. Það hefur orðið gríðarleg aukning í fjarvinnu eftir Covid faraldurinn og eru fyrirtæki, stofnanir og sérfræðingar að finna sem bestu leiðirnar til að leysa vandamálin sem hafa skapast í kringum fjarvinnu.
Davíð Rafn Kristjánsson er stofnandi og framkvæmdastjóri Swapp Agency á Íslandi.