Skip to main content
Category

Fréttir

Hvernig getur gervigreind einfaldað og eflt sjálfvirka ferla?

By Fréttir

Dagur: 14. maí 2025

Tími: 9:00-10:00

Staður: Háskóla Íslands – Háskólatorg, stofa 104.

Gervigreind í sjálfvirkum ferlum

Mannauður og 50skills bjóða á morgunfund þann 14. maí þar sem farið verður yfir hvernig gervigreind getur einfaldað og eflt sjálfvirka ferla.

Við förum yfir hagnýt og raunveruleg dæmi um hvernig gervigreind getur stutt við ákvarðanatöku, úrvinnslu gagna og sjálfvirka afgreiðslu mála.

Á fundinum verður sýnt hvernig hægt er að nota gervigreind til að:

  • Afgreiða erindi sjálfvirkt, bæði frá starfsfólki og utanaðkomandi aðilum
  • Yfirfara umsóknir, allt frá styrkumsóknum og starfsumsóknum til tjónatilkynninga
  • Tryggja að réttum upplýsingum sé skilað
  • Styðja við stjórnendur, með tillögum að úrlausnum
  • Meðhöndla öryggisfrávik og leggja til úrbótatillögur
  • Athuga hvort ferðabeiðnir samræmist stefnu vinnuveitanda
  • Senda persónuleg og skemmtileg skilaboð

Þátttakendur fá aðgang að sniðmátunum fyrir ferlana og geta byrjað að innleiða gervigreind í sínum ferlum strax.

Að kynningu lokinni verður haldin opin vinnustofa þar sem þátttakendur geta unnið í sínum eigin ferlum og fengið aðstoð frá sérfræðingum 50skills. Vinnustofan hefst upp úr kl. 10:00 og allir velkomnir.

Við hvetjum þátttakendur til að ræða ferlana sín á milli á vinnustofunni, og jafnvel deila sínum eigin ferlum.

Skráning á viðburð

Jólabingó fjölskyldunnar

By Fréttir

Dagur: 30. nóvember 2022

Tími: 18:00-1:30

Á TEAMS.  Hlekkur og nánari upplýsingar verða sendar þegar nær dregur.

Jólabingó allrar fjölskyldunnar. Allir í fjölskyldunni spila með.  Glæsilegir vinningar í boði.

Skráning á viðburð

Velkomin til starfa – Ráðningar og móttaka nýliða

By Fréttir

Dagur:  26. október 2022

Tími: 9:15-10:15

Staður: Gróska í Vatnsmýrinni.  Fundum verður streymt og verður hlekkurinn settur á FB okkar þegar nær dregur.

Við vitum öll að ráðningar og nýliðun hjá fyrirtækjum getur oft verið flókið og tímafrekt ferli. Fyrirtæki gera það á mismunandi hátt.

Edda Björk Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri Húsasmiðjunar ræðir um ráðningaferlinn þeirra, auglýsingar og hvernig gengur þeim að ráða í lausar stöður hjá þeim.

Adriana Pétursdóttir, leiðtogi í starfsmannaþjónstu ræðum um “onboarding” ferli þeirra, flækjustigið og hvernig þau halda utan um öll þau atriði sem fylgir því að fá nýtt starfsfólk.

Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50 skills ræðir um hvernig kerfið getur hjálpað fyrirtækjum til að laða að til sín flottu fólki og boðið þau velkomin á skilvirkan hátt.

Skráning á viðburð

Meistaramínútur – Kynning á niðurstöðum rannsóknar um líðan mannauðsfólks á Íslandi

By Fréttir

Dagur: 20. október 2022

Tími: 9:15-10:15

Fjarfundur á TEAMS.  Hlekkur sendur þegar nær dregur.

Edda Björg Sigmarsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Eimskip  kynnir niðurstöður meistararannsóknar sinnar um “Líðan mannauðsfólks á Íslandi”.

Skráning á viðburð

Alþjóðlegi mannauðsdagurinn 2022

By Fréttir

Dagur: 20.05.2022

Tími: 17:00-19:00

Staður:  Tilkynnt þegar nær dregur

Við bjóðum til vorfagnaðar í tilefni Alþjóðlega mannauðsdagsins 2022 sem haldinn verður hátíðlegur um allan heim.

Skráning á vorfagnað Mannauðs 2022

Atvinnutækifæri ungs fólks með skerta starfsgetu

By Fréttir

Dagur: 2. nóvember 2022

Tími: 9:15-10:15

Morgunverðarfundur haldinn hjá Samkaupum (fundarsalurinn “Betri stofan” í Firðinum í Hafnarfirði)

Málstofa um “Atvinnutækifæri ungs fólks með skerta starfsgetu”.
Framsögu sjá þær um, Gunnur Líf Gunnarsdóttir frá Samkaupum og Sara Dögg frá Þroskahjálp.

Skráning á viðburð

Gjaldgengi á vinnumarkaði eftir miðjan aldur!

By Fréttir

Dagur: 15. mars 2022

Tími: 9:15

Fundur á TEAMS

Er erfiðara fyrir fólk sem komið er yfir fimmtugt að fá vinnu heldur en þá sem eru yngri? Getur verið að kennitalan hafi þau áhrif að umsækjendur komi almennt ekki til greina í auglýst störf?
Og getur verið að aukin menntun hafi enn meiri fælingarmátt?

Málstofunni stýra Ingunn Ólafsdóttir lögfræðngur og mannauðsráðgjafi og Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Hoobla.

Fréttablaðið birti grein eftir Ingunni Ólafsdóttur um hennar upplifun hvað þetta varðar eftir að hún missti vinnuna í október í fyrra.
Greinin vakti mikil viðbrögð og svo virðist sem margir sem eru í sömu sporum séu að upplifa það sama og hún.

Á málstofunni ætlar Ingunn að fara aðeins yfir greinina og hvatann að skrifunum og þau miklu viðbrögð sem hún fékk í kjölfarið og Harpa þekkir vel til margra sem hafa verið og eru í þessum sporum í dag og hafa sagt henni sögu sína.

Skráning á viðburð

By Fréttir

Dagur: 12. apríl 2018

Tími: 8:30

Staður: Verkís, Ofanleiti 2

Lýsing

Starfsfólk á íslenska vinnumarkaðnum er að eldast og á næstu árum er stór kynslóð reynslumikilla einstaklinga að fara að hætta störfum sökum aldurs. Þessir einstaklingar hafa margir hverjir áratuga starfsreynslu hjá sínum fyrirtækjum og hafa öðlast sérþekkingu á starfsemi þess. Til að missa ekki þessa mikilvæga þekkingu frá sér þurfa fyrirtækin að bregðast við að þróa aðferðir til að yfirfæra þekkinguna með árangursríkum hætti.

Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri Verkís ætlar að bjóða okkur í heimsókn til sín og segja frá niðurstöðum rannsóknar sem hún gerði í tengslum við mastersverkefni um yfirfærslu þekkingar frá starfsmönnum sem eru að hætta sökum aldurs. Rannsóknin var gerð í nokkrum orkufyrirtækjum þar sem kannað var hvort fyrirtækin hefðu sett sér stefnu eða væru með ákveðna ferla við yfirfærslu þekkingar. Einnig var skoðað hvaða aðferðir viðmælendur töldu árangursríkastar að nota við yfirfærsluna og hverjar væru helstu hindranirnar.

Eftir fundinn stendur okkur til boða að skoða húsnæðið og vinnuaðstöðuna.
Vinnuumhverfið var endurhannað fyrir nokkrum árum þegar Verkís flutti í það nýtt.  Rétta vinnuumhverfið er mjög mikilvægt varðandi yfirfærslu þekkingar.

Fundurinn verður hjá Verkís, Ofanleiti 2 og hefst kl. 9:00. Léttur morgunverður frá kl. 8:30.

Skráning á viðburð

Vinsamlegast fyllið út í alla reiti

Error: Contact form not found.

By Fréttir

Dagur: 2. október 2020

Tími: 8:15 – 18:30
Dagskrá hefst kl. 9:00.

Staður: Harpa ráðstefnuhús í Reykjavík

Lýsing

Mannauðsdagurinn 2020
Dagskrá:

Skráning á viðburð

Vinsamlegsat fyllið út í alla reiti

Error: Contact form not found.