BIÐLISTI á þriðju verklegu vinnustofu Mannauðs um „Gervigreind í mannauðsstjórnun“.

Á þessari vinnustofu fá þátttakendur verklega þjálfun í að nota ChatGPT eða Claude í daglegum mannauðsstörfum. Við vinnum með raunhæf verkefni tengd mannauðsmálum og fáum gervigreindina til þess að vinna fyrir okkur.
 
Þátttakendur læra að búa til einfalda erindreka (agents) sem aðstoða við endurtekin verkefni og skoða hvernig tengja má gervigreind við önnur verkfæri, eins og tölvupóst, dagatal og fleira. Áherslan er á að spara tíma án þess að fórna mannlegu mati, trúnaði eða gæðum.
 
Við förum jafnframt yfir hvernig regluverk frá ESB hefur áhrif á notkun gervigreindar í mannauðsmálum og hvað er framundan.
 
Þátttakendur fara heim með:
– betri leið til að nota gervigreind í daglegri vinnu,
– hugmyndir að verkefnum og verkferlum sem má einfalda,
– einfaldan agent sem nýtist í starfi,
– gátlista fyrir örugga og ábyrga notkun í mannauðsmálum.
 
Markmiðið er að þátttakendur geti byrjað að nýta tækin strax daginn eftir og viti jafnframt hvar mörkin liggja.
 
Vinnustofan er verkleg. Þátttakendur þurfa því að koma með eigin tölvu og vera með áskrift að ChatGPT eða Claude.
 
Hjörtur Sigurðsson mun leiða vinnustofuna, en hann er sérfræðingur í hagnýtingu gervigreindar hjá Mynstru.