Dagur: 16. maí 2024
Tími: 17:00-19:00
Staður: Í húsnæði Akademias, Borgartúni 23, (3ja hæð)
Í tilefni Alþjóðlega mannauðsdagsins 2024 bjóðum við til VORFAGNAÐAR þar sem við ætlum að fagna deginum, hitta góða félaga, spjalla saman og njóta góðra veitinga. Einnig kveðjum við vetrarstarfið.
Á Alþjóðlega mannauðsdeginum ætlum við að vekja athygli á mikilvægi FJÖLBREYTILEIKA á íslenskum vinnumarkaði, kynna mælingu á nýrri INNGILDINGARVÍSITÖLU, nýrri útgáfu af Bara tala forritinu sem hjálpar til við að kenna íslensku og kynna nýjungar í fræðslugreiningum.
Tími: 16. maí kl. 17:00-19:00.
Staður: Akademias, Borgartún 23, 3ja hæð.
Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi, Alda, Akademias og Bara tala.