Næsti viðburður
KYNNING Á POPPINU – SAMFÉLAGSMIÐLI FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Kynning á Poppinu
Poppið er innri samfélagsmiðill fyrir fyrirtæki og stofnanir. Stofnendur Poppsins bjóða félögum á stutta kynningu á Teams þar sem þeir sýna hvernig kerfið virkar og hvernig það getur hjálpað vinnustöðum að halda utan um innri samskipti, miðla upplýsingum og efla tengsl í gegnum leiki, áskoranir og fleira skemmtilegt. Í lok kynningarinnar gefst tækifæri til að spyrja spurninga.
Fagleg og framsækin
Mannauður er í farabroddi á sviði mannauðsmála. Félagið er vakandi fyrir straumum og stefnum og er þannig faglegur vegvísir í atvinnulífinu.
Öflugt samstarf
Mannauður leggur metnað í samstarf við fagstéttina hérlendis og erlendis, háskólasamfélagið sem og atvinnulífið.
Þétt tengslanet
Mannauður er fagfélag sem byggir á öflugu tengslaneti þar sem félagsfólk getur sótt sér og veitt öðrum stuðning sem og faglega hvatningu.
Áhrifavaldur
Með faglegri vinnu Mannauðs hefur félagið mótandi áhrif á atvinnulífið og þannig hreyfiafl breytinga.

