Dagur: 29. febrúar 2024
Tími: 14:30-16:00
Staður: Háskólinn á Akureyri og líka í streymi
Er nóg að vera frábær í breytingum til að ná árangri? Eða þarf að fara á dýptina til þess að gera breytingar á vinnustaðnum auðveldari?
Fyrirlesturinn er fyrir stjórnendur, leiðtoga, umbótasinna, mannauðsfólk og aðra sem vilja ná árangri í breytingum. Kynntar verða til sögunnar viðurkenndar aðferðir í breytingastjórnun í bland við sannreynda hugmyndafræði kennara sem ræðst á orsök vanda vinnustaðarins.
Ágúst hefur 20 ára reynslu af breytingum en hann starfar sem stjórnunarráðgjafi í breytingum hjá Viti ráðgjöf. Auk þess kennir Ágúst við Opna háskólann.