Hvað gerir þú þegar starfsmaður segir þér frá nýrri ADHD-greiningu? Þegar umsækjandi með einhverfu biður um skýrari upplýsingar fyrir viðtal? Þegar starfsmaður með lesblindu biður um að fá fundargögn send fyrirfram? Eða þegar einhver glímir við vanda á vinnustað sem enginn skilur til fulls?
Mannauðsfólk er oft í lykilhlutverki í samtölum um þarfir, ráðningum og aðlögun starfsfólks. Þar sem talið er að 15–20% fólks séu taugafjölbreytt, til dæmis með ADHD, einhverfu eða lesblindu, eru góðar líkur á að þú hittir skynsegið fólk í starfi þínu, með eða án greiningar.
Á þessum fyrirlestri fáum við stutta yfirsýn yfir hvernig taugafjölbreytileiki getur birst á vinnustað og skoðum þrjú hlutverk mannauðsfólks: samtöl um þarfir, ráðningar og einfaldar aðlaganir sem kosta lítið eða ekkert.
Við ræðum líka stuttlega hvers vegna fáir segja frá. Þú færð með þér nokkur einföld dæmi og orðalag sem þú getur nýtt strax.
Að fyrirlestri loknum er tími fyrir spurningar.