Deloitte býður félagsfólki Mannauðs í heimsókn til sín og í „JÓLAHAPPÝ“, fimmtudaginn 3. desember frá klukkan 17-19.
Mannauðsteymi Deloitte ætlar að segja okkur hvernig þau hafa notað frammistöðustjórnun og ætla að fara yfir frammistöðumatsferilinn í heild sinni, alveg frá markmiðasetningunni til framtíðarþróunar í starfi.
Farið verður yfir hlutverk aðila sem koma að ferlinu og hvernig mannauðskerfið SuccessFactors styður við frammistöðustjórnunina í heild sinni og veitir yfirsýn yfir stöðu ferilsins á hverjum tíma.
Ljúkum árinu og fögnum aðventunni og jólunum saman, áður en jólahamagangurinn brestur á.
Boðið verður upp á léttar veitingar, bæði í föstu og fljótandi formi.

