CRANET 2026 – Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi

​Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi – CRANET 2026

Arney Einarsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst, Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg og Katrín Ólafsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík kynna lykilniðurstöður, lykilmælikvarða, þróun og alþjóðlegan samanburð á sviði mannauðsmála úr CRANET rannsókninni 2026. CRANET-rannsóknin er alþjóðlegt samstarfsverkefni um 40 háskóla í jafnmörgum löndum sem framkvæma reglubundið kannanir meðal mannauðsstjóra í aðildarlöndunum fyrir samanburðar-og langtímarannsóknir á sviði mannauðsmála. Markmiðið er að viðhalda og byggja upp þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar í hverju landi fyrir sig – sem og alþjóðlega. Fjallað er um aðferðir sem beitt í ráðningum, starfsþróun, frammistöðumati, kjaramálum og samskiptum, auk greiningar á þroskastigum mannauðsstjórnunar. Auk þess er komið inn á þætti er varða sjálfvirknivæðingu, gervigreind og aðgerðir á sviði heilsu og velferðar.

Staður: Ráðhús Reykjavíkur – Tjarnarsalur – Tími: kl. 9-11