Heimsókn til Símans – Mótivation er lykilþáttur þegar kemur að fræðslu og þjálfun.

​Síminn býður félagsfólki Mannauðs í heimsókn til sín í Ármúla 25 og ætlar Eva Karen fræðslustjórinn þeirra að fjalla um og fræða okkur um hvernig þeirra reynsla hefur verið af því ð nota innri hvatningu til að efla þátttöku í fræslu og þjálfun.
„Við erum sífellt að skoða hvernig við getum hvatt starfsfólk til að gefa sér tíma í annríki dagsins og sjá virðið í því að efla þekkingu sína og hæfni með markvissri fræðslu og þjálfun og teljum að innri hvatinn sé lykilinn að árangri“ segir Eva Karen fræðslustjóri Símans. Reynsla Símans hefur sýnt hversu öflug þessi hvatning getur verið þegar hún kveikir löngun fólks til að læra og þróast í starfi.  Við fáum að heyra söguna þeirra og reynsluna.