Skiptir jafnvægi í forystu máli?

​Á fundinum mun Erla Ósk Ásgeirdsóttir formaður Jafnvægisvogarráðs fjalla um jafnvægi í forystu á vinnumarkaði og kynna hvernig hægt er að nota Jafnvægisvogina sem verkfæri til að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Einnig kynnir Unnur Ýr Konráðsdóttir varaformaður Mannauðs niðurstöður nýrrar könnunar Mannauðs hvað “sæti við borðið” varðar. Boðið verður upp á umræður í lokin.