Hvetja sig áfram með samkennd!

Anna Dóra Frostadóttir, klínískur sálfræðingur.

Fjallað verður um hvernig við getum dregið úr streitu  og eflt innri styrk og seiglu með því að þjálfa góðlátlegt sjálfstal. Lögð er áhersla á að nálgast sjálfan sig með samkennd í stað sjálfsgagnrýni og hörku.

Erindið byggir á aðferðum úr Compassion Focused Therapy (CFT) og Mindful Self-Compassion (MSC), sem sameina núvitund, samkennd í eigin garð og taugasálfræðilegan skilning á streituviðbrögðum líkamans.
Fjallað verður um:
  • áhrif innra sjálfstals á líðan og hegðun
  • hvernig hægt er að virkja sefkerfi líkamans með samkennd
  • Skapa og styrkja öruggt athvarf innra með sér
  • hagnýt verkfæri til að mæta sjálfum sér af mildi í krefjandi aðstæðum
Þátttakendur fá einfaldar og hagnýtar æfingar sem hægt er að nýta strax í daglegu lífi – bæði í vinnu og einkalífi – til að efla jafnvægi, innri styrk, seiglu og góðlátlegt sjálfstal.
Erindið hentar öllum sem vilja:
  • draga úr streitu
  • styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust
  • byggja upp heilbrigt og uppbyggilegt samband við sjálfan sig
  • hvetja sig áfram með samkennd