Ólafur mun fjalla um tilfinningalegt og faglegt álag sem getur fylgt hlutverkinu, rýna í hvað getur farið úrskeiðis ef einangrunin varir of lengi og greina hvaða styrkleikar felast í stöðunni og hvernig má nýta þá án þess að brenna út. Hann mun einnig kynna leiðir til að draga úr áhættu, setja skýr mörk og efla faglegt sjálfstæði.

