Er í lagi að kvarta á þínum vinnustað? Hvað gerist ef við hlustum ekki á þau sem kvarta? Kvartanir á vinnustöðum eru oft túlkaðar sem neikvæðni, mótþrói eða persónulegur vandi þess sem kvartar eða kvartað er undan. Það starfsfólk sem tjáir sig reglulega um það sem betur má fara fær oft á sig stimpilinn „erfitt“ eða „leiðinlegt“ starfsfólk. Kvartanir eru í mörgum tilvikum fyrsta vísbendingin um að eitthvað sé ekki eins og það á að vera í samskiptum, skipulagi eða vinnustaðamenningu. Í þessum fyrirlestri er sjónum beint að kvörtunum, hvað þær eru í raun að segja okkur og hvað gerist þegar vinnustaðir hlusta ekki. Spurningin er ekki hvort fólk kvartar, heldur hvernig brugðist er við kvörtunum og hver ber ábyrgð á að taka á þeim áður en þær þróast í alvarleg mál, átök eða jafnvel einelti. Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum í vinnusálfræði og áratuga reynslu við úrvinnslu á krefjandi málum og verður m.a. rætt um algeng mistök og unnið með raundæmi. Markmiðið er að vekja til umhugsunar, skapa sameiginlegan skilning og styrkja vinnustaði í að bregðast við kvörtunum áður en þau verða að vandamáli.

