Jákvæð forysta – Eyþór Eðvarðsson

Jákvæð forysta: Alvöru kenning um stjórnun og menningu sem allir sem bera ábyrgð á uppbyggingu vinnustaða þurfa að þekkja.

Miðvikudagurinn 17. febrúar kl. 09:15-10:15

Fyrirlesari:  Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði og stjórnendaþjálfari hjá Þekkingarmiðlun

Rafrænn fundur á TEAMS

Það er ekki á hverjum degi sem maður rekst á kenningu sem fær mann til að hugsa og alvarlega velta fyrir sér fræðunum. Eftir 30 ár í kennslu og ráðgjöf á íslenskum vinnumarkaði upplifði ég slíkt augnablik þegar ég las Positive Leadership eftir Kim Cameron. Þar er á ferðinni fyrsta alvöru vísindalega studda kenningin sem byggir á þeirri nálgun að greina það sem er virkilega að virka.

Bókin tónar vel við þær bækur sem ég hef lengi haldið uppá þ.e. Good to Great og Build to Last eftir Collins og Porras.  Hér er komin góð tenging á milli stjórnendaaðferða, samskipta og menningar, ásamt hagnýtum aðferðum eins og að vinna með styrkleika, orðræðuna, orkugjafana og það sem gefur fólki og vinnustöðum tilgang og fær hjartað til að slá hraðar. „Eyþór Eðvarðsson“

Eyþór mun segja frá þessari kenningu og hvers vegna hún er, að hans mati, eitt það besta sem hann hefur séð.