Mannauðsdagurinn er einn stærsti viðburðurinn á sviði stjórnunar- og mannauðsmála á Íslandi.
Ráðstefnan hefur ávallt verið vel sótt af stjórnendum, starfsfólki mannauðsdeilda, sérfræðingum og öðru áhugafólki úr íslensku atvinnulífi. Undanfarin ár hefur verið uppselt á ráðstefnuna.
Samhliða ráðstefnunni er fyrirtækjum boðið að kynna vörur sínar og þjónustu á glæsilegum sýningarsvæðum í Hörpu, þar á meðal í Norðurljósum, ganginum fyrir framan Norðurljós og Eldborg, í Hörpuhorni og svo á nýju sýningarsvæði, Eyri sem liggur meðfram Silfurbergi.
Uppsetning
Sýningarsvæðið í Norðurljósum verður tilbúið til uppsetningar klukkan 12:00, fimmtudaginn 1. október, daginn fyrir ráðstefnuna. Kynningaraðilar geta því sett upp sýningarbása frá 12:00 – 16:00 þann dag.
Við biðjum sýningaraðila í Norðurljósum að vera allir búnir að setja upp básana á fimmtudeginum.
Sýningarsvæðið í Hörpuhorni og á ganginum verður því miður ekki tilbúið til uppsetningar fyrr en kl. 6:00 að morgni ráðstefnudagsins 2. október. Það verður að vera búið að setja upp alla básana fyrir kl. 8:00 en þá fara ráðstefnugestir að streyma inn.
Mikilvægt er að kynningaraðilar virði þessar tímasetningar.
Að gefnu tilefni vekjum við athygli á að hæð sýningarbása hefur verið takmörkuð við 2.5 metra nema með sérstöku samþykki.
Veitingar
Að gefnu tilefni skal áréttað að óheimilt er að koma með aðkeyptar veitingar inn í Hörpu, þetta á bæði við um veitingar í föstu og fljótandi formi.
Ef bjóða á upp á veitingar á kynningarbásum skal hafa samband við veitingadeild Hörpu (catering@khveitingar.is)
Aðgangur að ráðstefnunni
Hver sýningarbás fær sérstaklega merkta aðgangspassa fyrir sitt fólk með nafni fyrirtækisins.
Skrá þarf alla starfsmenn sýningarbássins og fá allir aðgangspassa með sínu nafni og nafni fyrirtækisins
Vilji kynningaraðilar taka þátt í ráðstefnunni þarf að greiða sérstaklega fyrir það. Miðasala á ráðstefnuna fer fram hér á vefnum.
Tímasetningar
Sýningin fer fram í Norðurljósum, Hörpuhorni, ganginum fyrir framan Norðurljós og Eldborg og á Eyri. Ráðstefnan hefst með opnun sýningarsvæðisins og afhendingu ráðstefnugagna klukkan 08:00. Hleypt verður strax inn í ráðstefnusalinn og ráðstefnan sjálf hefst stundvíslega klukkan 9:00.
Ráðstefnugestir koma á sýninguna fjórum sinnum yfir daginn (birt með fyrirvara um breytingar á dagskrá).
08:oo – 9:00 Húsið opnað og ráðstefnugögn afhent
Í kringum tíu leytið – Kaffihlé
12:00 – 13:00 Hádegishlé
Í kringum þrjú leytið – Kaffihlé
Aðföng
Hægt verður að fá leigð húsgöng í sýningarbásinn eins og borð (hátt barborð/sveppaborð), stóla, barstóla, bæklingastanda og fleira hjá Recon sem sér um sýningarsvæðið.
Það eru fleiri sýningaraðilar sem leigja búnað í bása sem og aðstoða fyrirtæki með básana sína.
Harpa hefur verið okkur innan handar með leigu á hvítum borðdúkum og leigu á skólastofuborð.
Dúkarnir kosta 3.000 kr. en skólastofuborðin rukka þeir ekki fyrir. Harpa leigir ekki háu sveppaborðin lengur.
Öll sýningarsvæði hafa aðgang að rafmagni og interneti.
Hugum að umhverfinu!
Að gefnu tilefni viljum við biðja kynningaraðila um að hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi þegar kemur að því að útbúa kynningarefni og gjafir til ráðstefnugesta.
Undanfarin ár höfum við fengið vinsamlegar ábendingar frá Hörpu að Mannauðsdeginum fylgi mikið rusl þar sem þátttakendur fá mikið af efni frá kynningaraðilum sem þeir skilja eftir á borðum og endar þar með í ruslinu.
Við viljum því biðja ykkur um að hafa þetta í huga þegar kemur að því að útbúa kynningarefni til dreifingar á deginum og hvetjum ykkur til að nýta rafrænar leiðir til að koma efni til ráðstefnugesta.
