Viðverustjórnun – Frá viðbrögðum til árangurs.

Við sjáum þetta oft fyrst í tölunum.
Fjarvera sem hækkar. Starfsmannavelta sem læðist upp. Púlsar sem sýna þreytu, fjarlægð eða skort á tengslum eða trausti.
Og svo spyrjum við: Hvað er í gangi?
Í þessu rafræna erindi mun Hilja færa fókusinn frá því að bregðast við vandanum yfir í að lesa merkin fyrr og grípa fólk áður en álag, óöryggi eða ítrekuð fjarvera nær yfirhöndinni.
Fjallað verður um:

Þetta snýst ekki um að telja daga og ekki heldur um eftirlit.
Heldur um að skilja hvað er að gerast undir yfirborðinu og bregðast við áður en fjarvera eykst.
Erindið byggir á raunverulegum dæmum úr íslenskum vinnustöðum og reynslu Hilju af því að vinna með yfir 1000 stjórnendum að forvörnum, viðverustefnum og viðverustjórnun – í stað krísustjórnunar.