Hvað verður um gögnin? Heimsókn til Þjóðskjalasafnsins.

Fræðsla fyrir mannauðsfólk hjá hinu opinbera (ríki, sveitarfélög og stofnanir þeirra) eða fyrirtækjum og félögum með afhendingarskyldu til Þjóðskjalasafns.

  • Hvað verður um gögnin sem við mannauðsfólk setjum inn í málakerfin,  s.s. ráðningargögn, niðurstaða samtala, veikindagögn, áminningar eða uppsagnir?
  • Gilda sömu reglur um gögn sem verða til í allskonar öppum og skýjalausnum?
  • Þarf að skrá og varðveita allt? Fjallað um lagaumgjörð og reglur þegar kemur að skráningu og varðveislu og á hvaða forsendum hún byggir. Hagnýt ráð verða rædd og tekin dæmi úr fjölmiðlaumfjöllun síðustu missera um hvenær reynir á að gögn séu aðgengileg þegar á þarf að halda.

Fyrirlesarar:
Heiðar Lind Hansson, fagstjóri gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands
Ólöf Jóna Tryggvadóttir, mannauðs- og gæðastjóri hjá Þjóðskjalasafni Íslands