Í erindinu fjallar Helena Jónsdóttir um hvernig stjórnendur og mannauðsfólk geta greint merki um vanlíðan, átt uppbyggileg samtöl og veitt sálræna fyrstu hjálp þegar á reynir.
Farið verður yfir:
– Hvernig við lesum merki og grípum inn í áður en vandi verður að krísu
– Hvernig við eigum samtöl af öryggi og fagmennsk
– Hvernig við tengjum starfsfólk við viðeigandi úrræði
Einnig verður fjallað um mikilvægi viðbragðsáætlana á vinnustöðum þegar erfiðir atburðir eða áföll eiga sér stað og hvernig bregðast má fumlaust og af öryggi við þegar á reynir.
