Mannauðsdagurinn 2024

DAGSKRÁ MANNAUÐSDAGSINS 2024

Fundarstjóri í Eldborg
Bergur Ebbi, listamaður, leikari, fyrirlesari og rithöfundur

Á Mannauðsdeginum í ár verður fjallað um mörg af miklvægustu verkefnum mannauðsfólks og stjórnenda fyrirtækja. Með gríðarmiklum og hröðum breytinum sem m.a. heimsfaraldurinn og hraðar tæknibreytingar hafa ýtt úr vör stöndum við frammi fyrir nýjum verkefnum og gerbreyttu verklagi sem mikilvægt er að við náum tökum á sem fyrst. Gervigreindin er gríðarlegt tækifæri og verður “leikbreytir” bæði á vinnumarkaði og í samfélaginu. Með töluvert breyttu landslagi í stjórnun, nýrri kynslóð og auknum kröfum starfsmanna, fjölbreytileika á vinnumarkaði, jafnréttismálum, fjarvinnustefnu og húsnæðisbreytingum stendur mannauðsfólk frammi fyrir nýjum og spennandi áskorunum sem fela í sér fjölmörg tækifæri.

Gestir ráðstefnunnar fá þá nýju innsýn og stóru hugmyndir sem á þarf að halda til að vinnustaðurinn sé samkeppnishæfur. Þeir geta bætt við sig nýrri þekkingu og nýjum aðferðum til að geta enn betur tekist á við helstu áskoranir og tækifæri sem mannauðsfólk, mannauðsstjórar og aðrir stjórnendur í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum standa frammi fyrir.
Mannauðsdagurinn er vettvangur fyrir þá sem láta sig nútímalega stjórnun mannauðs varða. Fyrirkomulagið í ár verður fjölbreytt blanda af fræðilegri og hagnýtri umræðu um mikilvægustu mannauðsmálin og stjórnunaraðferðirnar sem efst eru á baugi sem svo ráðstefnugestir geta tekið heim með sér og nýtt sér í lífi sínu og starfi.

Ávarp formanns og setning Mannauðsdagins

Adriana K. Pétursdóttir, formaður Mannauðs

Hlutverk Mannauðs er að efla fagmennsku, vera framsækið og leiðandi á sviði mannauðsstjórnunar í þágu atvinnulífsins. Félagið hefur vaxið hratt undanfarið og eru félagar nú rúmlega 800 talsins. Mikil áhersla hefur verið lögð á hið öfluga tengslanet félagsfólk þar sem hægt er að „sækja og veita“ stuðning og faglega hvatningu. Eins leggur félagið áherslu á að vera vakandi fyrir nýjustu straumum og stefnum og er þannig faglegur vegvísir í atvinnulífinu og hreyfiafl breytinga. Adriana K. Pétursdóttir, formaður Mannauðs, fer stuttlega yfir hvað hefur áunnist og hvað sé framundan hjá félaginu.

Ávarp ráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra

Ráðherra setur Mannauðsdagsins 2024 og gerir grein fyrir helstu breytingum sem orðið hafa á örorkulífeyriskerfinu með nýsamþykktum lögum. Í þeim er örorkumatið fellt niður og í staðinn kemur samþætt sérfræðimat þar sem tekið er tillit til fleiri þátta en bara læknisfræðilegra. Einnig er í nýju lögunum lögð mikil áhersla á atvinnuþátttöku og virkni einstaklinga með mismikla starfsgetu og hefur Vinnumálastofnun fengið það hlutverk að finna fólki störf i samræmi við starfsgetu hvers og eins.

Fyrirlestrar

Fundarstjórar

  • Bergur Ebbi – Eldborg (listamaður, rithöfundur, fyrirlesari)

  • Anna Claessen – Silfurberg A (markþjálfi, fyrirlesari)

  • Ásdís Eir Símonardóttir – Silfurberg B (ráðgjafi)

  • Friðrik Agni Árnason – Kaldalón (menningarstjórnandi, greinahöfundur)


Fyrirlestrar

Dr. Kate BarkerFuture of Work is Revolutionizing HR

  • Fjallaði um gervigreind og nýsköpun í mannauðsmálum.

  • Dæmi um fyrirtæki sem nýta tæknina til að breyta vinnuaðferðum.

  • Aðferðir sem HR getur innleitt strax.

Debra & Ken CoreyStopping bad bosses from ruining lives

  • Rannsóknir á áhrifum slæmra yfirmanna.

  • 10 gerðir „slæmra yfirmanna“ og afleiðingar hegðunar þeirra.

  • Aðferðir til að þjálfa stjórnendur með The Great Boss Building Block™ líkaninu.

Catherine MatticeSolving Harassment, Bullying & Aggression at Work

  • Mobbing og einelti sem kerfisvandamál fremur en einstaklingar.

  • Leiðir til að byggja jákvæða vinnustaðamenningu með skýrum gildum og ferlum.


Sérstakir fyrirlestrar eftir sali

Silfurberg B – Brynjólfur Borgar Jónsson (DataLab)

  • Starfsþróun með spunagreind

  • Gervigreind sem persónulegur ráðgjafi.

  • Möguleg áhrif á þjálfun og starfsþróun.

Silfurberg A – Halldóra Skúladóttir

  • Jöfnum leikinn – breytingaskeiðsvænir vinnustaðir

  • Umræða um áhrif breytingaskeiðsins á vinnustaði og aðgerðir til að styðja starfsmenn.

Eldborg – Ragnheiður Aradóttir & Þorsteinn Bachmann

  • Leystu úr læðingi – þitt sanna sjálf

  • Persónulegur vöxtur og starfsánægja sem lykill að árangri fyrirtækja.


Eftir hádegi

Dr. Daniel SusskindThe Future of Work in the Age of AI

  • Áhrif gervigreindar á störf, bæði hvít- og bláflibba.

  • Hvernig störf og hlutverk fagfólks breytast.

Vicki CulpinSmall Choices can make Big Difference

  • Smávægilegar ákvarðanir stjórnenda hafa stór áhrif á velferð og árangur.


Síðdegis

Sigríður IndriðadóttirÁgreiningur sem uppspretta orku og nýrra hugmynda

  • Lausn ágreinings með Nonviolent Communication (NVC).

Þórður Bjarki Arnarson & Sigurhanna Kristinsdóttir

  • Erum við að gera réttu hlutina fyrir fólkið okkar?

  • Forgangsröðun verkefna sem styðja menningu og árangur.

Kristrún Anna Konráðsdóttir

  • Drullupyttir teyma

  • Algengar hindranir í teymaþróun og hvernig teymi komast áfram.

Þórey Vilhjálmsdóttir ProppéInngilding á íslenskum vinnumarkaði

  • Kynning á niðurstöðum Inngildingarvísitölu 2024.


Lokafyrirlestrar

Amanda ArrowsmithHR’s Role in Change and Transformation

  • HR sem lykilþáttur í breytingastjórnun og umbreytingu menningar.

Jessica ZwaanPeople Operations as a Product

  • Að hugsa um mannauðsdeildir sem „vöru“ sem þarf að þróa og bæta stöðugt.

Uzair Qadeer (BBC)Redefining the Future World of Work

  • 5 E’s of Employee Experience – að skapa vinnustaði sem styðja framleiðni, vellíðan og nýsköpun.