Anna Dóra Frostadóttir, klínískur sálfræðingur.
Fjallað verður um hvernig við getum dregið úr streitu og eflt innri styrk og seiglu með því að þjálfa góðlátlegt sjálfstal. Lögð er áhersla á að nálgast sjálfan sig með samkennd í stað sjálfsgagnrýni og hörku.
Erindið byggir á aðferðum úr Compassion Focused Therapy (CFT) og Mindful Self-Compassion (MSC), sem sameina núvitund, samkennd í eigin garð og taugasálfræðilegan skilning á streituviðbrögðum líkamans.
Fjallað verður um:
- áhrif innra sjálfstals á líðan og hegðun
- hvernig hægt er að virkja sefkerfi líkamans með samkennd
- Skapa og styrkja öruggt athvarf innra með sér
- hagnýt verkfæri til að mæta sjálfum sér af mildi í krefjandi aðstæðum
Þátttakendur fá einfaldar og hagnýtar æfingar sem hægt er að nýta strax í daglegu lífi – bæði í vinnu og einkalífi – til að efla jafnvægi, innri styrk, seiglu og góðlátlegt sjálfstal.
Erindið hentar öllum sem vilja:
- draga úr streitu
- styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust
- byggja upp heilbrigt og uppbyggilegt samband við sjálfan sig
- hvetja sig áfram með samkennd
—
