Dagur: 24. janúar 2024
Tími: 13:00-14:30
Staður: Dale Carnegie við Ármúla 11, 3. hæð, Reykjavík
Þróunarsvið Dale Carnegie í USA tekur árlega saman strauma og stefnur í mannauðsmálum. Nú hefur fyrirtækið bent á fjóra þætti mannauðsmála sem stjórnendur og HR fólk ætti að veita sérstaka athygli á næsta ári.
Á þessari vinnustofu munu fjórir ráðgjafar Dale Carnegie á Íslandi koma með innlegg um þessa þætti og í framhaldi af kynningu hvers þáttar verða umræður þar sem við tengjum þættina íslenskum vinnumarkaði.
Vinnustofan verður haldin 24. janúar 2024 í húsnæði Dale Carnegie við Ármúla 11, 3. hæð frá kl. 13.00 til 14.30. Vinnustofan er staðbundin.
Skráning á vinnustofuna
Dagur: 30. nóvember 2023
Tími: 9:00
Staður: Kjarval í Austurstræti (Athugið að einungis 15 komast á vinnustofuna)
Hiring 101: Designing a Candidate Experience
Hiring 101: Designing a Candidate Experience is an interactive workshop exploring key aspects of recruitment: building connections, understanding do’s and don’ts, enhancing the brand experience, diving into Diversity, Equity, Inclusion, and Belonging (DEIB), using different lenses to view hiring practices, and recognising the power of privilege in recruitment.
Vinnustofunni stjórna: Kathryn Gunnarsson, Thelma Kristín Kvaran og Jenna Kristín Jensdóttir verða með vinnustofuna
Skráning á viðburð
Dagur: 27. nóvember 2023
Tími: 10:00-11:00
Fjarfundur á TEAMS
Fáðu innsýn í hvað skiptir máli fyrir mismunandi hópa og hvar sé hægt að fá aðstoð og upplýsingar fyrir starfsfólk.
Á fundinum verða kynntar áhugaverðar niðurstöður Gallup könnunar um hvenær og hvernig starfsfólk óskar þess að minnka við sig eða hætta að vinna. Að auki var spurt hvort þeim væri kunnugt um hvernig starfslokastefna væri á vinnustaðnum.
Þá verður kynnt fræðslutorg LV þar sem finna má fræðslumyndbönd ætluð mannauðsstjórum eða þeim sem sjá um ráðningar, bókhaldi eða launavinnslu vegna iðgjaldaskila og svo almennt efni fyrir allt starfsfólk.
Skráning á viðburð
Dagur: 29. nóvember 2023
Tími: 17:30-19:00
Spilum bingóið í gegnum TEAMS og sérstaket bingóforrit
Jólabingó Mannauðs fyrir alla fjölskylduna hefur verið gríðarlega vinsælt. Allir í fjölskyldunni mega spila með og fær hver og einn 2 spjöld til að spila með. Við spilum í gegnum TEAMS með sértöku BINGÓ-forriti.
Einstaklega glæsilegir vinningar eru í boði.
Anna Claessen hjá Happy Stúdío stjórnar.
Skráning í jólabingóið
Dagur: 7. desember 2023
Tími: 16:30
Staður: NOVA í Lágmúla 9, Reykjavík
Jólagleði Mannauðs hefur alltaf verið gríðarlega vel heppnuð og vel sótt. Í ár býður NOVA okkur heim og segir okkur frá því hvernig þeim tekst að halda ekki bara „skemmtilegasti skemmtistaður í heimi“ viðurnefninu, heldur líka „skemmtilegasti vinnustaður í heimi“ viðurnefninu og býður okkur í glæsilegar veitingar.
Skráning á jólagleðina
Dagur: 26. október 2023
Tími: 9:15-10:15
Fjarfundur á ZOOM
Inga Kristjánsdóttir, heilsuráðgjafi og næringarfræðingur skorar á félagsfólk Mannauðs og samstarfsfólk þeirra í heilsuáskorun! Allir mega vera með.
Það er mjög algengt að fólk heldur að það þurfi að breyta hreinlega öllu varðandi mataræði og lífsstíl til að ná árangri. Það er í flestum tilfellum mikill misskilningur. Oft skila litlar og einfaldar breytingar mjög miklu, hressa uppá líðan og auka lífsgæði til muna. Á þessum fræðslufundi ætla ég að leggja fyrir ykkur fjórar ofureinfaldar jáskoranir, sem þið öll getið tekið og klárað með glans. Allir verða sigurvegarar! Þessar jáskoranir snúast um örlitlar breytingar á mataræði, um streitustjórnun og hreyfingu. Allt mjög einfalt og gerlegt. Þegar þið hafið tekið þessum jáskorunum þá verður orkan betri, sem og einbeiting, úthald og vinnugleði. Vonandi sofið þið betur og verðið i heildina lífsglaðari og hraustari. Svo er bónusinn að ykkur mun líklega langa minna í sykur en áður. Eruð þið til?
Skráning á viðburð
Dagur: 1. desember 2023
Tími: 12:30-13:30
Staður: Borgartún 23, 3ja hæð, hjá Akademias
Samkeppni um starfsfólk hefur aldrei verið meiri, miðlaflóran til að nálgast nýja umsækjendur hefur aldrei verið fjölbreyttari og flóknari. Í þessum fyrirlestri ætlar fyrirlesari að gefa nokkur heilræði í öflun nýrra umsækjenda, nýtingu ólíkra miðla í birtingu starfa, kostun og dreifingu ásamt því að fjalla um uppbyggingu vörumerkja til að höfða til framtíðar umsækjenda. Fyrirlesturinn er hugsaður þannig að hlustendur geta tekið með sér og prófað nokkrar leiðir til að nálgast framtíðar umsækjendur strax eftir fyrirlestur.
Fyrirlesari: Arnar Gísli Hinriksson, stofnandi Digido.
Skráning á viðburð
Dagur: 21. nóvember 2023
Tími: 9:15-10:15
Rafrænn fundur á TEAMS
Er gervigreind ógn við mennskuna?
Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttur, heimspekingur.