Landsvirkjun í samstarfi við minningarsjóð Dr. Brynju Bragadóttur býður okkur á forsýningu á kennslumyndbandi um einelti á vinnustöðum.
Um er að ræða stafræna fræðslu sem verður eftir fundinn gerð aðgengileg fyrir alla vinnustaði að nýta við fræðslu um þessi mál sér að kostnaðarlausu. Efnið er gefið út á íslensku og ensku.
Á fundinum munum við einnig segja ykkur frá minningarsjóðnum (Ágústa Ýr Þorbergsdóttir) og verkefninu (Hildur Jóna Bergþórsdóttir) ásamt því að forsýna fræðslumyndböndin okkar.
9.sept kl. 11:30-12:00.