Mannauðsdagurinn 2015 var haldinn í Silfurbergi í Hörpu föstudaignn 9. októbóber. Á deginum var fjallað um breytingastjórnun út frá ýmsum hliðum.
Á ráðstefnunni var sérstaklega fjallað um þær áskoranir sem stjórnendur og mannauðsstjórar standa frammi fyrir þegar kemur að framkvæmd stefnu, breytingastjórnun og að byggja upp fyrirtækjamenningu sem stuðlar að betri árangri fyrirtækja.
Þátttakan á deginum var mjög góð, en um 350 manns sóttu ráðstefnuna sem var metfjöldi fram til þessa.